Alveg kominn tími á smá update :) Tíminn er ótrúlega fljótur að líða hérna, enda nóg að gera. Frá því síðast er ég td. búin að flytja í herbergið/íbúðina sem ég verð í þar til ég fer héðan og er enn að gera kósý, en ég segi betur frá því síðar.
——-
It is certainly time for an update :) The time has gone by extremely fast here because I have had many things to do. Since last update I have e.g. moved into my room/apartment I will stay in probably until I leave, I am still making it cozy, but I will write more about that later.
—
Hverfið sem ég var í, þar sem yndislega sófafólkið mitt býr, heitir Paddington, svo í síðustu viku tók ég smá rölt um hverfið, skemmtileg aðalgata með allskonar kaffihúsum, ‘rauðakross’ búðum og á endanum er meira að segja ‘drive-through’ mjólkurbúð, jú áfengi er allt selt í sér áfengisbúðum, reyndar ekki ríkisreknum eins og heima.



The neighborhood that I was in, where my wonderful, best couchsurfers live in, is called Paddington. So last week I took a stroll around the neighborhood, the mainroad is very nice, with all kinds of cafe’s, ‘red-cross’ shops (here called OP-shops) and at the end of the street there is even a drive-through liqour store, yes, alchol is sold here in special shops, similar like back home in Iceland, but here the shops are not run by the government like back home.
—
Á fimmtudagskvöldið fór ég svo og hitti Mandy, þýsku kærustuna hans Adam, sem var skiptinemi hjá okkur í Frankfurt á síðustu önn. Við fórum á mjög góðan Nepalskan/Himalayan veitingastað í hverfinu en hún kemur í Brisbane nokkra daga í viku að læra, en þau búa á Sunshine Coast sem er hér í um klukkutíma fjarlægð, en YingHan bekkjarfélagi minn úr FH er einnig þar í skipinámi. Svo ég hef í huga að kíkja þangað fljótlega í heimsókn.
Föstudagar eru mjög langir skóladagar, er í tíma frá 9-11 og svo aftur frá 16-20 svo vonandi get ég verið dugleg að nota þennan millitíma til að læra og þegar ég fór út þennan morguninn var þoka yfir allri borginni, mjög skrítið og víst ekkert sérstaklega algengt. Fyrir mig alveg hrikalegt því þá sjást allir köngulóarvefirnir rosalega vel :O því miður tók ég engar myndir af þokunni, reyndi að taka mynd af köngulóarvef með risakönguló í. En það komu fréttir um þokuna í blöðunum, því flug stöðvaðist meira að segja í smá stund um morguninn.

On Thursday night I went to meet Mandy, she is German and the girlfriend of Adam that was doing an exchange in Frankfurt last semester. We went to a very nice Nepalese/Himalayan restaurant in the neighborhood, but Mandy comes to Brisbane some days a week to stuydy. They live on the Sunshine coast, which is around 1hr. drive away, but there YingHan, my classmate from FH is also studying. So I definately plan to visit them soon.
Fridays are very long school days, but I have class from 9-11 and then again from 16-20, so hopefully I can use the time inbetween for studying. When I went out last Friday morning, there was a fog over the whole city, very strange and I have heard, not so common. For me it was terrible cause then I could see ALL the spider webs very clearly :O Unfortunately I didn’t take any photos, I tried to take a photo of spider web with a huge spider in it. But there were some news about the fog in the papers, aparently even flights got delayed for some time.
—
Á laugardaginn fór ég svo á markað með sófafólkinu mínu og Simone en hún er þýsk og vermdi ‘sófann minn’ eftir mína dvöl. Þessi markaður er í hinu háskólasvæðinu á mínum skóla og þar er hægt að fá allskonar grænmeti, mat og dót.



Tom æstur í Bratwurst/Tom eager to get a Bratwurst

Simone & Me
On Saturday I went to a marked with my couchsurfers and Simone, she is German and also a couchsurfer at ‘my couch’. This market is on the other campus of my university and there you can get all kinds of vegetable, food and stuff.
—
Eftir markaðinn hjálpaði Tom mér svo að flytja, síðan náði hann í Simone og við fengum okkur nokkra öl á nýja heimilinu mínu og kíktum á tvo bari í nágrenninu með nýju íbúðarfélögum mínum Andy og Dan ásamt fleira fólki.

Nýju húsfélagarnir Dan & Andy, með Tom á milli sín/ Me new housemates Dan & Andy with Tom between them

Ég varð að prufa þennan Ástralska bjór / Had to try this Australian beer

After the market Tom was so nice to help me to move, he then went and picked up Simone, and we had some bears at home and then checked out two bars in the neighborhood with my new roommates, Andy and Dan along with some other people.
—
Á sunnudaginn bauð Dan, annar húsfélagi minn, mér með í picnic með fullt af vinum hans í garð í New Farm, öðru hverfi, hinu megin við miðbæinn. Ég tók þá ferjuna í fyrsta skipti, mjög skemmtilegur ferðamáti og einmitt sá fljótlegasti til að fara í skólann. Og já, ég var bitin af maur í garðinum og það var ekki gott, á milli tánna og sveið alveg fram á kvöld - s.s.á meðan ég var að reyna að forðast köngulærnar þá kemur lítill ‘saklaus’ maur og ræðst á mig hehe - ég þarf að komast yfir þessa köngulóarfælni mína sem fyrst hérna down-under!

City Cat ferjan / ferry

Eins og sést er veturinn hér alveg hrikalegur / The winter is really hard here :O

Sunday, Dan, one of my new roommates, was so nice to invite me with him to a picnic with his friends in New Farm, another district on the other side of the CBD. I took the ferry, or the City-Cat as it is called for the first time. A very nice way to travel by public transport and the quickest one to go to my university. And yes, I got bitten by an ant in the park - that is while I was busy trying to stay away from the spiders a small ‘innocent’ ant attacks me, haha - I have to get over this arachnophobia soon here down-under!
—
Um kvöldið bauð Simone, þýski sófalingurinn mér svo í mat á ‘gamla’ staðinn en hún eldaði svakalega góðan lókal-þýskan rétt sem kallast Mehlspatzen og bar það fram með eplamauki, afar þýskt og gott :)


Tom gaf okkur að smakka heimabruggið sitt og Grahams / Tom let us taste his & Grahams homebrewed beer

Þessi mynd var greinilega tekin áður en ég kenndi þeim að segja “kjöt” / This picture was obviously taken before I thought them to say “kjöt” (icelandic for “meat” and popular during photographs) :Þ
That night, Simone, the German couchserfer, invited me to dinner with the guys at the ‘old’ place. She cooked a very good local-german dish called Mehlspatzen, some kind of small dumplings and served with applemouse, very German and delicious :)
—
Á mánudaginn fór svo ég í verzlunarmiðstöðina hér í nágrenninu, heitir Toowong Village og er undir 10 mín labb. Þar keypti ég ýmsar nauðsynjar og kósýheit-hluti og svo þegar ég fór í tíma þá skellti ég mér einmitt með ferjunni, afar fínt. Maður getur bæði slakað á inni í ferjunni eða notið útsýnissins úti þegar veðrið er gott.

Húsið mitt, íbúðin er á efstu hæðinni hægra megin / My house and the apartment is on the top floor

Toowong village séð frá göngustígnum fyrir utan hjá mér / Toowong village seen from the walkway in front of my house

Inní verzlunarmiðstöðinni, engir venjulegir rúllustigar / Inside the mall, pretty strange esceladors

Ferjan séð af svölunum / The City Cat seen from my balcony

Útsýnið úr ferjunni á leiðinni í skólann / The view on my way to Uni

Háskólasvæðið mitt / My campus

Á leið til baka með ferjunni, sést glitta í húsið mitt bak við fyrsta húsið og svo Toowong Village hægra megin / On the way back home on the city-cat, my house is behind the first yellow house and on the right is the Toowong Village
On Monday I then went to the mall in my neighborhood, it is called Toowong Village and is under 10 min walk. I bought some necessities and other stuff to make my room cosy, after that I went to class and took the City-Cat (ferry) again, very nice. You can both relax inside or enjoy the view outside when the weather is good.
—
Í gær fór ég svo í skólann og við fórum á fyrirlestur á SouthBank, en sá hluti Brisbane er akkurat hinu megin við ána frá skólanum og 1988 var EXPO sýning þar. Við fengum kynningu frá forstjóra Southbank fyrirtækisins sem sér um svæðið en í þessum kúrs erum við fjögur í hóp að greina svæðið og skilum svo inn, sem einstaklingsvinna, mismunandi hluta af svæðinu, ég mun td. skoða opnu svæðin. Fyrst eigum við að skila inn greiningu á okkar þætti og svo í lokin einhverskonar hugmyndir frá okkur um svæðið. Í morgun átti ég svo fund með leiðbeinandanum mínum fyrir verkefnakúrsinn, svo ég er komin aðeins nær að finna mér gott verkefni.

Kort af South Bank, skólinn minn og miðbærinn er hinu megin við ána / Map of South Bank, my uni and the CBD is on the other side of the river

South Bank séð frá ferjunni / South Bank seen from the City Cat



Manngerð strönd / Man made beach in the middle of South Bank
Yesterday in class we went to a lecture in South Bank, but that part of Brisbane is on the other side of the river from my university and the CBD and in 1988 it was an EXPO site. We got a presentation from the CEO of Southbank corporation, which controls the area, but in this course we are four in a group to analyze the area and then we hand in as individuals, different aspects of the area, I will e.g. look at the green spaces. First we just have to present our analyzis and then in the end our proposals, since this class is called Urban Design Studio. This morning I then had a meeting with my supervisor for my intergrated project class, so I am a bit closer to finding a good project.
—
Já ég segi betur frá nýja heimilinu mínu næst, jafnvel set inn myndir af herberginu ef það verður orðið nógu kósý en það er líka afar næs að sitja á svölunum í mjúkum leðursófa og dást að útsýninu.

Yes, I will tell you more about my new home next, maybe I will even put some pictures of my room, if I have finished making it cozy enough, but it is also very cozy to sit on the balcony in a soft sofa and enjoy the view.
—
Það sem er sérstaklega nýtt fyrir mér ennþá og skrítið, er hvað það dimmir ofboðslega snemma hér, eða rétt upp úr fimm síðdegis, svo ég er að reyna að læra að fara fyrr að sofa og vakna fyrr eins og flest fólk virðist gera hérna. Einnig drekkur fólk hérna mun meira te en kaffi, svo ég drekk í mesta lagi einn kaffibolla á dag hérna, allavega ennþá, en mun meira te og já svo eru líka ýmsar nýjar reglur sem maður tekur eftir og skrítnir mjóir göngustígar sem enda út í runna :)


But what is especially new for me here and still as strange, is how early it gets dark, or just after five pm, so I am still trying to learn how to go earlier to bed and wake up earlier, like most people here seem to do. Also, people here drink way more tee than coffee, so I drink maximum one coffee per day, at least still, but much more tee, which is good and yes, then there are also some new rules and strange narrow walkways that end in a bush :)
—
Ahh já gleymdi næstum því síðasta húsmeðliminum, þetta er hann Kitler :Þ

Ahhh yes, I almost forgot to mention my last roomie, this is Kitler :Þ