Jæja, þá er þessi önn búin og alveg ótrúlegt hvað tíminn hefur liðið hratt hérna í Þýskalandi. Ekki á morgun, heldur hinn, held ég til Brisbane og verð komin þangað eldsnemma á fimmtudagsmorguninn. Já, þetta er ansi langt ferðalag sem ég fyrir vændum, mitt lengsta til þessa, heilir 27tímar + tímamismunur, 10 tíma flug héðan til Seoul þar sem ég á gott 7 tíma stopp og get annað hvort skoðað mig um eða verið slök og fengið mér nudd og svona á flugvellinum og svo annað 10 tíma flug frá Seoul til Brisbane.
Ég byrjaði að pakka fyrir alvöru í gær og hélt áfram í dag og gengur alveg þokkalega… erfiðast er að mega aðeins taka með sér ein 20kg :O Vetrarfötin eru allavega öll komin í kassa, þrátt fyrir að nú sé hávetur í Ástralíu. Þar sem Brisbane er frekar norðarlega er veturinn fremur mildur og ef maður ber saman íslenskar sumartölur og Brisbane vetrartölur þá má ekki greina mikinn mun en meðal vetrarhitinn í Brisbane er svona frá 10-20°c. Veðurspánna næstu daga er hægt að sjá hér. Ég er einmitt nýfarin að venjast hitanum hérna í Frankfurt, búið að vera óvenjuheitt undanfarið, og ég verð að játa að það er stórkostlegur munur að læra fyrir próf í +30°c, jafnvel +40°c suma daga eða þegar maður er á hóteli, með sundlaug, kokteil og herbergi með loftkælingu í sama hita ;)
Síðustu vikur hafa að mestu leiti einkennst af lærdómi, hita og HM, það var hörkustemmning hérna í kringum HM og hefði nú verið ennþá skemmtilegra ef Þýskaland hefði komist í úrslitin, en því miður þá varð Kolkrabbinn Páll sannspár og Þýskarar fóru heim með bronsið.
Prófin kláruðust svo síðasta föstudag, gekk vel, ekki jafn gríðarlega glimrandi og á fyrstu önninni en nokkuð vel samt. Ég fæ nú ekki síðustu einkunnirnar fyrr en eftir rúman mánuð þar sem ég á enn eftir að leggja lokahönd á tvær ritgerðir sem á að skila í ágúst.
Mig langaði að prufa að setja inn nokkrar myndir frá síðustu vikum, sjá hvernig þetta kemur út áður en ég byrja að ‘reporta’ frá Ástralíu, en fyrst enska útgáfan….
_________________
Wel, now this 2nd semester is finished and it is so strange how fast time has gone by here in Germany. Not tomorrow, but the day after, I will head of to Brisbane and I will arrive there bright and early on Thursday morning. Yebb, this is quite a journey and by far, my longest travel up to now, ~27hours in total + time difference, 10hour flight to Seoul where I will have a good 7 hour stop and can either enjoy some excursions or just chill at the airport with a massage, continuing with another 10 hour flight directly to Brisbane.
I started packing for real yesterday, continued today and I must say it is going fairly well… the most difficult part is to only be allowed to travel with 20kg :O My winter clothing are at least all in a box, even if it is now the middle of the winter in Australia. Since Brisbane is ‘quite’ north, the winter is fairly mild and if you compare the current Icelandic summer values to the Brisbane winter ones, there is actually not much difference, but the mean ‘winter’ temperature in Brisbane is ~10-20°c. Here you can see the Reykjavik, Iceland forecast and compare it to the Brisbane one. I am actually just getting used to the heat here in Frankfurt, it as been unusually warm here recently and I have to confess that there is an extreme difference in having to study in +30°c, and some days even +40°c or when you are at a hotel, with a swimming pool, cocktails and a AC room in the same heat :)
Last weeks can mainly be defined by studying, heat and the World Cup. During the WM there was a very good atmosphere here and it would have been even more fun if Germany had gotten to the finals, but unfortunately, Paul the Octopus predicted right and Germany went home with the bronze.
The exams finished last Friday, it went good, not as extraordinary as the first semester but good anyway. I will though not get my last grades until after over a month since I still have to make the final polishing on two essays that are due in August.
I wanted to put in a few photos in here from last weeks, see how it comes out since I am still learning the basics of this site, before I start ‘reporting’ from down under :)
2 dagar / 2 days…..
http://www.tumblr.com/customize/erlamg#