Jæja, þá er frívikunni að ljúka. Var með 40% kynningu síðasta föstudag og fór svo beint í 2000km Road Trip norður upp til Cairns. Fór með öðrum sófaling sem er Ástrali og heitir Blair og við fórum á eldgömlum húsbíl sem annar sófalingur á og hafði skilið eftir í Brisbane og vantaði að fá bílinn sinn uppeftir. Hér má sjá ‚fákinn‘

Well, then my vacation week is almost finished. I had a 40% presentation last Friday and then I went straight on a 2000km road trip with another couchsurfer, an Aussie named Blair, north up to Cairns. We were taking a very old campervan up north for another couchsurfer that lives up there and had left the van in Brissy.
——————
Hittum fullt af hressu fólki á leiðinni, hér er ég og ferðafélaginn í Airlie Beach með John, sófaling sem býr þar á bátnum sínum. Nafnið mitt var ekki alveg að virka fyrir fólkið Í Airlie, svo ég notaði Early nafnið mitt sem Gunni bró gaf mér fyrir löngu og auðvitað svínvirkaði það.

We met a lot of fun people on the way, here I am with my travel buddy in Airlie beach with John a couchsurfer that lives there on his boat. My name was not easy for the people in Airlie, so my alter-name my brother gave me a long time ago, Early, worked very well instead.
——————
Því miður rigndi mikið annan daginn svo það var ekki mikið skoðað í Airlie, en væri alveg til í að fara þangað aftur

Unfortunately it rained a lot on the second day so we didn‘t see so much in Airlie, but I would love to go there again
——————
Á þriðja degi kom sólin loks almennilega fram svo það var stokkið á strönd í Bowen


On the third day the sun finally came out, so we used the oppertunity and went to the beach in Bowen for a bit
——————
Héldum svo áleiðis til Townsville, skoðuðum bæinn aðeins og fengum okkur fish&chips, gistum svo hjá þýskum sófaling þar

Then we went on our way to Townsville, checked out the town a bit, had some fish and chips and caught up with a German couchsurfer my travel buddy knows and stayed at her house for the night
——————
Á fjórða degi komumst við svo á áfangastað, stoppuðum á leiðinni og fengum okkur kjötbökur, áströlsk hefð og nokkurskonar þeirra innlendi skyndibiti, svo ég held ég sé hætt að reyna að fá mér kebab hér, búin að reyna tvisvar og þeir valda mér alltaf vonbrigðum, en kjötbökurnar eru góðar. Gaman að sjá landslagið á leiðinni, grænu fjöllin, sykurreyrinn og bananatrén. Hef samt ekki ennþá séð kengúru, orðið soldið skrítið, en ég tel ekki með kengúrurnar sem ég sá ekkert sérstaklega sprækar í vegkanntinum. Enduðum svo í Cairns og gistum þar hjá gömlum skólafélaga ferðafélagans.





On the fourth day we got to our destination. Stopped on the way for some meat pies, a very Australian tradition and kind of their domestic fast food, I think I have stopped trying the kebabs here, tried twice and they always disappoint me, but the meat pies are delicious. So nice to se all the different landscape on the way, the green mountains, sugar canes and banana trees. Haven’t still seen any kangaroos though, getting quite silly, well, I don’t count the road kills on the way :( We ended up in Cairns and stayed the night at an old schoolmate of my travel buddy.
——————
Eftir rúmlega 2000km keyrslu í húsbíl þá var ekki slæmt að geta flogið til baka.

Bless Cairns / Good Bye Cairns

Hæ Brisbane / Hello Brissy
After around 2000km drive in a very old caravan it was not bad to fly back ‘home‘ to Brissy
——————
Kom svo heim seint á þriðjudaginn og á miðvikudagskvöldið fór ég með Tom í þýska klúbbinn í Brisbane. Hann er að læra þýsku og fór ég með honum að hitta aðra skólafélaga og kennarann, drekka nokkra þýska bjóra, borða þýskan mat og mikilvægast af öllu, tala þýsku í heilt kvöld. Afar gott að æfa aðeins þýskuna hérna down under





I came home late on Tuesday and on Wednesday night I went with Tom to the German club in Brisbane. He is studying German and I went with him to meet some of his uni-mates and their teacher, drink a couple of German beers, eat German food and most importantly, speak German for a whole evening. Very good to practice the German a bit here down under.
——————
Svo við hittum þennan stórkostlega persneska kött á leiðinni heim, Marta lítur út eins og mús við hliðina á þessum haha:O

We stumbled across this amazing persian cat on our way have from the club, my exotic cat back home, Marta, looks like a mouse compared to this one :O
——————
Framundan er svo að mestu leiti lærdómur, eins og ég sagði áður á ég að skila tveimur stórum ritgerðum eftir allt of stuttan tíma :S Veit ég geri nú reyndar eitthvað skemmtilegt líka inn á milli. Á morgun ætla ég að kíkja á Sólskins ströndina (The Sunshine Coast), hitta Ying Han bekkjarsystur mína frá Frankfurt, skoða strandirnar og vera hjá henni í eina nótt.Hver veit nema ég sjái kannski lifandi kengúru :Þ
——————
The following weeks will mostly be dominated by studying, but as I said before I have to hand in two very big papers way too shortly :S But I know I will do some fun stuff in between. Tomorrow I am going to the Sunshine Coast to visit Ying Han, my classmate from Frankfurt, check out the beaches and spend one night with her. Maybe I will even see a kangaroo :Þ
——- Brisbane 24.-29.September 2010
-
aeonra liked this
-
drugsrdrugs liked this
-
naplesguy liked this
-
erlamg posted this