Er engan veginn að fatta að ég sé búin að vera hérna í Ástralíu í tæpa tvo mánuði, finnst ég rétt nýkomin! En skólinn er á góðu róli og styttist í seinni hlutann. Það er nokkuð gott að hér þarf maður alltaf að sýna einhverja vinnu í hverri viku og mörg ‚milli‘ skil svo maður kemst ekkert upp með að slóra þar til kemur að prófum. Er búin að skila inn tveimur ritgerðum og vera með tvær kynningar, svo næsta föstudag er stór kynning. Þar á eftir er viku frí og svo er það lokaspretturinn, skil á tveim stórum ritgerðum og próf 22.okt. og svo hönnunarverkefnisskil 9.nóv. og þá er önnin búin og maður getur farið að slaka á fyrir alvöru hér down under, vúhú.
——————
It is hard to realise that I have actually been in Australia for almost two months now, I feel like I just got here! Uni is doing good and the finish line is just around the corner. It is pretty good that you always have to show some work here every week and many intermediate hand ins, so you can’t get away with slacking off until the end of the semester. I have already handed in two small essays and had two presentations. Next Friday I have a big final presentation, then a week holiday and after that the home stretch ending with a hand in of two big essays and an exam on the 22nd of October and a design project hand in on the 9th of November. After that I am finished and I can relax for real here down under :)
——————
Jamm, þrátt fyrir að ég sé búin að vera hér svona lengi þá verð ég að játa að ég hef ekki enn séð kengúrur eða kóalabirni, en það hlýtur að koma að því fljótlega. Er þó að verða örlítill meiri Ástrali því ég keypti mér svona um daginn, og hér eru svona strandskór kallaðir thongs, afar skrítið.

Yes, so even if I have been here so long I have to admit that I haven‘t seen a kangaroo or a koala yet, but that must happen soon. I am though becoming a bit more Australian every day. Bought these shoes the other day, an essential Australian wear, flip flops, but here they are not called flip flops, but thongs, how strange.
——————
Fyrir tveimur helgum síðan var upphafdagur Brisbane hátíðar, menningarhátíð sem stendur yfir þar til næstu helgi og inniheldur fullt af atburðum út um alla borg. Á fyrsta deginum var rosaleg flugeldasýning og fór ég með fólkinu heim til Steven‘s. Hann býr rétt hjá okkur og er með svakalegt útsýni yfir borgina. Það sem kom mér mest á óvart var hvað flugeldasýningin var lengi, rosalega ljósashow í yfir 20 mínútur en skotið var upp frá pöllum og af brúnum yfir ánni sem liggur þvert í gegnum borgina. Magnaðasta við sýninguna voru tvær F-111 þotur sem flugu yfir og brenndu eldsneyti sem bókstaflega lýsti upp himininn. Skv. upplýsingum sem ég fann, brenna þær um 165 lítrum af eldsneyti….. á sekúndu! Þessar þotur eru farnar á ‚eftirlaun‘ hér svo þetta er líklega með síðustu skiptum sem þær sjást á sýningum sem þessum.


A fortnight ago it was the start of the Brisbane festival, a cultural art festival that is on until next weekend with many happening around the city. On the first day there was a massive firework show, so I went with my housemates to Steven’s place, he lives close to us and has an awesome view over the city. What surprised me the most was that the firework show was on for over twenty minutes and they were shot from platforms and the bridges on the river. The most amazing part of the show were two F-111 jets that flew over the city and burned fuel that literally lid up the sky. According to information I found, the jets burn around 165 litres….. per second! These jets have already ‘retired’ so this was probably one of the last time they are used for shows like this.
——————
Í síðustu viku fór ég loks aðeins út fyrir borgina en ég kíkti með nokkrum nýjum sófalingum í eyju sem heitir Stradbroke, yfirleitt bara kölluð Straddie og er ekki nema um 30km frá Brisbane. Við fórum í dagsferð og það var alveg yndislegt að sjá og finna sjóinn á ný og ekkert smá fallegar strendur og útsýnið á eyjunni.




Last week I finally went out of the city a bit, but I went with some couchsurfers to an Island called Stradbroke, usually just called Straddie and it is just over 30 km from Brisbane. We went on a day trip and it was just wonderful to see and feel the ocean again and the beaches were so beautiful and the view on the island too.
——————
Skellti mér svo á tónleika síðustu helgi á frábærum tónleikastað sem er í grasagarðinum hjá skólanum mínum. Sabrina, þýsk sófavinkona mín frá Heidelberg bauð mér með sér og við sáum hljómsveit sem heitir Bullet For My Valentine, frekar amerísk ‚metal‘ hljómsveit en það var frábært að fara á svona stóra tónleika og á svona frábærum stað. Við lentum í því að það kom gamall fullur sköllóttur kall að spjalla við okkur, sem spurði okkur þeirrar skemmtilegu spurningar, hvort ég væri mamma hennar. Ég er fædd ’81 og hún ’88, svo við vorum ekki alveg vissar hvor ætti að vera meiri móðguð, ég fyrir að vera eldgömul eða hún barn, svo við ákváðum bara að gera grín af þessu og kalla ég hana núna bara þýsku dóttir mína.


I went to a big concert last weekend. The concert was at a venue called the Riverstage, situated in the botanical gardens, close to my uni. Sabrina, a German CS (couchsurfing) friend of mine from Heidelberg, invited me with her and we saw a band called Bullet For My Valentine. A very American ‘metal’ band, but it was still super nice to go to a big concert like this at a very nice outdoor venue. We met an old drunk bald guy that asked me if I was her mother. Me born in ’81 and she in ’88, so we weren’t sure which one of us should be more offended, me for being really old or she just a kid, so we just decided to make fun of it and I just call her now my German daughter.
——————
Kíkti svo í picnic á sunnudaginn, aðeins að njóta sólarinnar og hitta nýtt fólk

Then I went to a small picnic on Sunday, just to get some sunrays and meet new people
——————
Í vikunni áttum við svo að koma með konsept módel í hönnunartímann sem ég er í, s.s. eitt módel per hóp og halda örkynningu á konseptinu sem hópurinn er með. Það var mjög áhugavert og skemmtilegt, fyrir utan þegar við vorum að taka myndir af módelinu þá rak hópfélaginn minn óvart hornið á borðplötunni sem við notuðum sem bakgrunn í hausinn mér. Verð að játa að það var alls ekki gott og daginn eftir var hausinn á mér mjög skrítinn. Ég fékk líka smá paranóju kast og fór að gúggla og fór að hafa áhyggjur að ég væri kannski í alvörunni slösuð, haha, en ég er hress og kát og paranójan farin sem betur fer.

This week at uni, we were supposed to bring a concept model for my design class, that is, one model per group and then give a very short presentation about our concept. It was very interesting and fun, besides the fact that when we were photographing the model, one of my group members was aligning the table plate we used as background, me aligning the model and volla, I got hit in the head with the corner of the plate. I have to admit, that hurt pretty bad and the day after my head felt very weird. I had a bit of paranoia, googling and worrying I might actually be very injured, haha, false alarm, I am good and the paranoia has completely gone.
——————
Í gær kíkti ég svo með Tom, Hayley og skólafélaga hennar í úthverfi sem heitir Sunnybank. Þetta hverfi er þekkt sem svokallað Kínahverfi Brisbane. Reyndar er þetta ekki túrista-Kínahverfið sem allir þekkja og er í dalnum, heldur er þetta hverfið þar sem flestir Asíubúar í Brisbane búa. Þar er hægt að fá rosalega góðan mat frá allri Asíu og svo eru risastórir asískir súpermarkaðir með allskonar dóti. Við fengum okkur rosalega góðan Víetnamskan hádegismat og fengum okkur skrítna drykki sem innihéldu t.d. núðlur.

’Sérstaki’ drykkurinn hans Tom/ Tom’s special drink

Fjórlita drykkurinn minn / My four colour drink

Kaupir hrísgrjónapott og færð öskubakka frían með, en ekki hvað / Buy a rice pot and get a free ashtray with, very convenient

Yesterday I went with Tom, Hayley and her classmate to a suburb called Sunnybank. This suburb is known as the Chinatown of Brisbane. Well, actually it is not the tourist-Chinatown everybody knows in the Valley, but a suburb where most of the Asian population of Brisbane lives. There you can get all kinds of yummy food from all over Asia and then they have huge Asian supermarkets with all kinds of strange things. We had a very good Vietnamese lunch and enjoyed some strange drinks that even contained noodles.
——————
Jamm, ætla að vera rosalega dugleg að læra í vikunni, fyrir kynninguna á föstudaginn. Svo er jafnvel planið að kíkja í smá ferðalag norður, sjá smá af Ástralíu í frí vikunni og vera vel endurnærð fyrir lokasprettinn. Svo er reyndar líka valfrjáls skólaferð til Melbourne í byrjun október þar sem á að kíkja á borgaskipulag og heimsækja fyrirtæki. Langar rosalega að fara í hana líka en þarf að tékka betur á tíma og peningum, Lemur í kjós ;)
ps. setti nokkrar myndir hérna fyrir neðan frá Straddie
——————
Jebb, I have to very harsh on myself this week and focus on studying hard for my presentation next Friday. Then I will hopefully go on a small trip, explore a bit of the Australian landscape in my vacation week to have full study strength for the home stretch. Then there is also an optional study trip to Melbourne in the beginning of October, I really want to go to that one too, but I have to check better time and money, we will see :Þ
ps. I put in some extra photos down below from my trip to Straddie.
——- Brisbane 3.-17.September2010