erla margrét
Brisbane þriðji hluti / part three

Mér finnst alveg ótrúlegt að ég sé búin að vera hérna í Brisbane í meira en mánuð, einn búinn, minna en fimm eftir. Ég ætlaði að vera löngu búin að setja inn einhverjar fréttir en það var of mikið að gera í skólanum síðustu tvær vikurnar og þá þarf eitthvað að sitja á hakanum.

——-

I find it pretty amazing that I have been here in Brisbane over a month now, one down, less then five to go. I had planned to write something for a while, but school has been pretty busy for the last two weeks, so then something has to wait….

 

——————

en já, þrátt fyrir mikinn lærdóm er ég líka búin að gera ýmislegt skemmtilegt. Einu sinni í mánuði er svokallað “ferðatösku-grams” í miðbænum, fólk getur skráð sig og komið með max 3 ferðatöskur hvert og selt það sem það vill, algjör snilld. Ég fór þangað með Tom & Ellen ásamt þýska sófalingnum, Simone. Hitti svo einnig YingHan bekkjarsystur mína frá Frankfurt á markaðnum. Keypti svakalega jummí ‘cupcake’ og einhver föt á skít og kanil og ég, Simone og YingHan skelltum okkur svo á afar góðan og ódýran asískan veitingastað. Næstu helgi er einmitt aftur ‘ferðatösku-grams’, ætla sko ekki að missa af því.

but yes, in spite of a lot of studying I have also managed to do a lot of fun things around the city. Once a month there is a so called ‘Suitcase Rummage’ in the centre, people can sign up and bring up to 3 suitcases and sell what they want. I went with Tom & Ellen, their German couchsurfer, Simone and also I met YingHan there, my classmate from Germany. I bought a very yummy cupcake and some super cheap clothes. Me, Simone and YingHan then went to a very good and cheap Asian restaurant in the city. The Suitcase Rummage is again next week, I will definitely not miss that.

 

 

——————

Er svo einnig búin að fara nokkru sinnum í ‘Dalinn’, sem er svo kallað partýhverfið hér, hverfið heitir Fortitude Valley og er yfirleitt bara kallað ‘The Valley’. fyrir rúmum tveimur vikum fór ég í fyrsta skipti þangað með húsfélögunum og vinum þeirra. Byrjuðum á að borða á stað í dalnum sem heitir Cyber City 2002, einnig góður og ódýr asískur veitingastaður og þessi staður er eins og margir, svokallaður BYO staður, en BYO stendur fyrir “Bring-Your-Own” og er þá verið að tala um áfengi. Þetta er afar vinsælt hérna í Ástralíu, held þetta sé aðallega vegna þess hversu erfitt það er að fá áfengisleyfi, sem skýrir líka ástæðuna af hverju flestir ‘barir’/skemmtistaðir hér eru hótel, því með því að bjóða upp á mat og gistingu er mun auðveldara að fá áfengisleyfi. Þegar veitingastaðir eru BYO þá taka þeir yfirleitt svokallað tappagjald sem er yfirleitt ekki hátt og margir barir selja í staðinn inn og eru með fólk á barnum sem sér um að merkja og geyma drykkina þína.

I have been a couple of times to the Valley, the party area of Brisbane, the name of the district is Fortitude Valley, but usually just called the Valley. Just over two weeks ago I went there for the first time with my housemates and friends. We started out eating at this restaurant called Cyber City 2002, also a very good and cheap Asian place and this place is like many other places here, so called BYO place, but BYO stands for “Bring-Your-Own” meaning booze. It is very popular here in Australia, think it is mainly because how hard it is for places to get a liquor licence, which also explains why so many bars/clubs here are actually hotels, but by offering food and accommodation it is much easier to get a liquor licence. When restaurants are BYO’s they usually charge a small amount as a ‘tap-fee’ and many bars have entrance fees instead and have people at ‘the bar’ in charge of labelling and cheap your drinks in a cold place.

 

 

——————

Fyrir tveim vikum fór ég svo með Tom, Ellen, Neran og ‘nýja’ ameríska sófalingnum þeirra, Hayley í miðbæinn en þau höfðu heyrt um kaffihús sem væri nokkurn veginn falið. S.s einu leiðbeingarnar til að finna kaffihúsið var aðalgatan sem það var við, það væri í gömlu verksmiðjuhúsi, í húsasundi og það þyrfti að fara undir bílahlið til að finna það. Neran og Hayley voru búin að fara þangað áður svo þau héldu sér fyrir aftan okkur meðan við löbbuðum fram og aftur um götuna. Tók smá tíma að finna það, en það tókst og er þetta afar kósý kaffihús

Two weeks ago I went to the city with Tom, Ellen, Neran and a ‘new’ American couchsurfer they had, Hayley. They had heard of this hidden cafe and the only directions to find it, was the street it was on, it was in an old factory house, in an alley and under a boom gate. Well, Neran and Hayley had been there before so they stayed quietly behind us when we searched, we found it in the end after walking up and down the street a bit, and it is very cosy.

 

 

——————

Í sömu viku átti einmitt Andy, annar herbergisfélaginn ammæli, svo hann var með partý á Pólska Klúbbnum, bar hérna ekki svo langt frá, þar var kjaftað og drukkinn pólskur bjór sem endaði svo á því að við skelltum okkur í læknadeildarpartý með einum vini þeirra

The same week it was also Andy’s birthday (one of my housemates) so he had a party at the Polish Club, a bar not so far from here, there we had some nice polish beers and chats ending up with going to a med school party with their friend Daley.

 

——————

Síðustu helgi voru svo kosningar hér í Ástralíu, það er búið að vera gaman að fylgjast með kosningunum sem utanaðkomandi, en eins og flestir vita urðu niðurstöðurnar þannig að hvorugur stóru flokkanna fékk hreinan meirihluta svo það er allt enn í frekar lausu lofti hérna. En þá helgina kíkti ég einmitt á tónleika og í dalinn að tjútta, svo á laugardagsmorgninum fór ég á markað í West End sem er mjög vinsæll til að kaupa ferskt grænmeti og annað góðgæti, Dan annar húsfélaginn og kærasta hans Caitlin voru nýbúin að fá afhenta búninga sem þau keyptu sér á netinu, svo ég fór á markaðinn með risaeðlu og kisu :)

Last weekend there were elections here in Australia, and it has been quite interesting following the elections as an outsider, but as most already probably know, the results were that neither of the big parties had a majority so it is all still kind of up in the air. But that weekend I went to a cool concert and then to the Valley again and Saturday morning I went to the weekend markets in WestEnd, a very popular market to buy fresh vegetable and all sorts of yummy stuff, Dan one of my roommates and his girlfriend Caitlin had just received costumes they ordered online, so yes, I went to the market with a dinosaur and a cat :)

 

 

——————

Á kosningakvöldið var svo kosningapartý hjá Daley, sem er vinur strákana og sófafólksins. Það var hálfgert báta-þema í partýinu en frjálslyndi flokkurinn hafði komið með afar skrítið kosningaloforð fyrir kosningarnar: ‘stöðvið bátana’, en Ástralía er að glíma við akkurat öfug vandamál og flest Evrópulönd, eða mikla fólksfjölgun. Um fjórðungur þeirra 21 milljón manns sem búa í Ástralíu þá er um 1/4 ekki fæddur hér og 2008-2009 fluttu um 160.000 manns til Ástralíu, bara eins og hálft Ísland. En já, nokkuð sérstök afstaða gegn innflytjendum af frjálslyndum flokk, en við þekkjum nú svo sem fleiri dæmi um svoleiðis…..

On the election night, there was an election party at Daley’s, he lives in the same neighbourhood as me, and is a friend of my housemates and my couch-hosts. There was a short of boat theme at the party, since  the Liberal party at a very strange slogan as one of their main campaign slogan, ‘Stop the Boats’, but Australia is dealing with some problems opposite most western-European countries, very rapid population increase. But around one fourth of the 21 million living in Australia are not born here and between 2008-2009, around 160.000 people moved to Australia, around the half of the population of Iceland. Yes, a very strange stand towards immigrants for a liberal party, but unfortunately we know many more examples of that…..

 

 

——————

Og já eins og ég sagði áðan, þá er búið að vera brjálað að gera í skólanum, flestir sem ég þekki eru bara að taka eitt eða tvö fög með vinnu, held við séum ekki nema 4 eða 5 sem erum að taka öll fjögur fögin, en þessi master er eins árs master svo já, vinnuálagið er frekar mikið ef maður er að taka fulla önn. Í síðustu viku var einmitt kynning í einu fagi og skil á svokölluðu ‘project proposal’ fyrir annað verkefni. Kynningin gekk nú ekkert voðalega vel, kennararnir klúðruðu tímamálunum sem varð til þess að fyrstu þrír hóparnir fengu 2 klst. fyrir sínar kynningar en þegar kom að okkur, þriðja síðasta hópnum, var komið eitthvað tímastress í kennarana og við vorum meira að segja rænd um tíma, en ég skilaði allavega inn góðum blöðum og vona að þau gildi meira en þær 3 mínútur sem ég fékk að tala, en verkefnið gildir 40% og snérist um að kortleggja South Bank svæðið sem ég talaði um í síðustu færslu.

yes, as I said before, uni has been very busy. Most people I know at school are only taking one or two subjects and working, I think we are only around 4-5 taking all a full, 4 unit semester and this master is a one year master so the work load is pretty intense if you take a full semester. Last week I had a presentation in one subject and a hand in of a project proposal in another subject. The presentation did not go so good, the teachers totally blew the time management which resulted in the first three groups getting over two hours for their presentations but when it was our turn, the third last group the teachers had suddenly got time stressed and they even robbed us of some our time, but the sheets I handed it took a lot of work and I hope they value more than the 3 minutes I had to present, but this project is supposed to value 40% of the unit and was about mapping the South Bank area I mentioned in my last blog.

 

 

——————

Kitler er afar skemmtilegur köttur, stundum er það er lokað inn til mín þá kemur hann og klórar fyrir utan hurðina og mjálmar þar til maður opnar fyrir honum, hann heldur mér stundum kompaní þegar ég er að læra, enda passar hann afar vel við rúmfötin mín, í síðustu viku var hann líka svo góður að koma heim með mús fyrir okkur :O


Kitler, ‘my’ aussie cat is very fun cat. Sometimes when you have your door closed he scratches outside the door and mews a bit until you let him in. He sometimes keeps me company when studying, and he fits very well in with my bed sheets. Last week he was so nice to bring home a mouse for us.

 

Í þessari viku er ég svo aðallega búin að vera að læra, var með for-kynningu fyrir hina ritgerðina á föstudaginn og þurfti að velja mér bók til að skrifa bóka-umsögn um fyrir næsta föstudag. Já þessi mikli lærdómur hamlar mann í því að geta ferðast almennilega um hérna fyrr en önnin er búin, en í staðinn reyni ég að gera ýmislegt skemmtilegt milli lota, svona svo maður verði ekki geðveikur og hafi einhverja gulrót í lok lærdómsdags. Á miðvikudaginn með nokkrum úr Sófa-hópnum hérna, en á hverri borg er svokölluð hóp-síða þar sem fólk getur skrifað inn ef það er að fara að gera eitthvað skemmtilegt og aðra hverja viku hérna eru kaffihúsa’fundir’, þar sem fólk sem býr hérna og er að ferðast hérna um getur hist og rætt málin, ætla einmitt að kíkja í næstu viku á svoleiðis fund, en á miðvikudaginn var bara svona óformlegur hittingur, svo ég hitti nokkra á stað í dalnum sem bíður upp á $5 dollara steik og spurningakvöld á miðvikudögum.

This week I have mainly been studying, had a preliminary presentation for one of my big theses on friday and had to pick a book for a book review in another subject. Yes, this hard studying really limits all the travelling I wanted to make here until the semester finishes, but instead I try to do a lot of fun stuff within the city between study sessions, so I don’t get crazy and have a carrot at the end of a study day to look forward to. Wednesday night I went and met some people that are part of the Brisbane couchsurfing group, this was just an informal get-together at a bar in the Valley that serves $5 steaks and has trivia night on Wednesday. Every other Tuesday there is a ‘formal’ get-together, I’m thinking to check that out next week.

 

 

——————

Á föstudaginn var ég búin að ákveða að ætla að fara bara heim eftir skóla, en eins og áður sagði er ég í tímum til 20 á föstudagskvöldum, en heyrði í sófafólkinu mínu sem sagði mér að það væri verið að opna bar við hliðina á falda kaffihúsinu og þau ætluðu að skella sér, svo fyrst Erla var nú hvort sem er í borginni, þá var um að gera að kíkja, stundum fínt að kíkja aðeins út án þess að hafa sig til hehe. Flottur staður, er einmitt svona BYO staður eins og margir, nokkrar hljómsveitir, misgóðar, misháværar og Tom&Graham tóku sig til og sungu með í einu lagi.

On Fridays I always have class until 8pm, pretty shitty, so this Friday I just thought to go home and chill, but I heard from my CShosts and they told me that a bar was opening beside the hidden cafe, so since I was already in the city, I decided to check it out. Always good to meet people after a long study day. It’s a pretty cool place, also a BYO like many, there were some good and bad bands, also loud once playing and Tom&Graham even sang a long a bit.

 

——————

Í gærkvöldi var ég svo boðinn í mat til Desmond, en hann er vinur Poly’ar, bekkjarsystur minnar frá Frankfurt. Hún er frá Brasilíu og kynntist Desmond fyrir nokkrum árum þegar þau leigðu saman í Perth. Núna býr hann hér svo Poly kynnti okkur. Desmond er einmitt frá Malasíu og í matarboðinu var líka Malasískt par og ástralskur strákur sem Des þekkir. Des eldaði afar góða lamb og nauta ofnsteik og einnig var hann með chillímarinerað nautasnitsel, fór heim ansi södd :)

Yesterday I was invited to a dinner to Desmond, but he is a friend of Poly, my classmate from Frankfurt. She is Brazilian and met Desmond a few years back when they rented together in Perth. Now he lives and works here in Brissy so Poly introduced us. Des is originally from Malaysia and in the dinner party were also a couple from Malaysia and an Aussie guy. Des cooked a very good lamb and beef roast and he also had marinated beef snitchel with chilli, super good and I went home very full :)

 

——————

Þrátt fyrir mikinn lærdóm og nokkur góð tjútt er ég líka búin að vera nokkuð dugleg að baka, alveg óskiljanlegt, hehe. Margir sem ég hef kynnst hérna eru mjög duglegir að baka sín eigin brauð, kökur, búa til karrý og pestó og allskonar, svo þetta hefur hvatt mig til að vera sjálf dugleg að búa til eitthvað nýtt. Ágætt þegar maður er heima að læra að taka sér pásu frá lærdómnum og búa til eitthvað sem maður sér og getur notið árangursins strax sjálfur :) Bakaði mér rosagott bananabrauð í síðustu viku og möffins, prufaði svo að baka brauð sem tókst mjög vel í annarri tilraun, tókst að drepa gerið í þeirri fyrstu með nokkuð skondnum árangri og gerði síðan karamellu/kókos/hnetukökur í gær sem ég fór með í matarboðið og voru líka afar bragðgóðar, þó útlitið hafi aðeins klúðrast. Held ég eigi eftir að baka bananabrauðið oft, ótrúlega auðvelt að gera, og gott að skera niður í sneiðar og skella inn í frystinn og eiga þá alltaf eitthvað til að taka með sér í nesti :)

Despite a lot of studying and some good partying, I have also been quite active baking new things, unbelievable, hehe. Many I have gotten to know here bake their own breads, cakes, make curries and pesto’s’ and all sorts of things, so this has encouraged me to bake and make things. Pretty good when you are home studying, taking small breaks in-between and make something you can see and enjoy the results straight after :) I baked a very good banana bread last week, some yogurt muffins and tried to bake a bread for the first time. That worked out very well in my second try, managed to kill the yeast in my first try with funny results. Then I made some caramel-coconut-nut cakes yesterday to take with me to the dinner party. They were very tasty even if they didn’t look as good as they should have. I think I will make the banana bread often, very easy and good to cut up and put slices in the freezer, so I always have something to take with me to school :)

 

 

——————

Ég er líka búin að vera mjög heppin með mína köngulóarfælni að hafa ekki séð margar köngulær, sérstaklega ekki inni :O en fann eina inni á klósetti í síðustu viku, mjög stór að mínu mati. Fékk Andy, annan búðarfélagann til að ‘bjarga’ mér, honum fannst hún nú frekar lítil, og ekki var hún eitruð, svo ekkert að óttast, en mér fannst hún samt vibbi, þarf alvarlega að komast yfir þessa köngulóarfælni mína :S

I have also been very lucky with my Arachnophobia, haven’t been in contact with so many spiders yet, especially not inside :O but I found one in the toilet last week, I thought it was big, so I asked Andy, my housemate to ‘save’ me. He thought it was quite small and not poisoned, so no worries, I still thought it was disgusting… I so have to get over this arachnophobia of mine :S

——————

Náði líka skemmtilegri mynd af ánni um daginn, aldrei séð hana eins busy

I also caught a good photo of the river one day, never seen it this busy before

 

——- Brisbane 7.-28.August 2010

http://www.tumblr.com/customize/erlamg#
blog comments powered by Disqus