erla margrét
Brisbane sjötti hluti / part six

3 mánuðir búnir, 3 eftir. Skrítið, stundum finnst mér ég vera nýkomin hingað down under og hina stundina eins og ég sé búin að vera hérna mun lengur. En allavega er næstum mánuður síðan ég setti inn einhverjar fréttir og myndir hingað inn, svo þetta verður líklegast mjög löng færsla, jæja, þið getið þá bara lesið hana í hollum :)

——————

3 months done, 3 to go. Strange, sometimes I feel like I just got here down under and on the other hand like I have been here for ages. Anyways, it is almost a month since I posted some news and pictures, so I am guessing this will be a long post, well, you can just read it with intervals :)

——————


Fyrstu helgina í október fór ég til Sunshine Coast, sem er svæði við ströndina í um 100km norður af Brisbane. Þar býr Ying Han, skólasystir mín frá Frankfurt, en hún er í skiptinámi þar og einnig býr Adam þar, sem var skiptinemi hjá okkur í Frankfurt í fyrra með Mandy unnustu sinni. Ég fór snemma um morguninn, þetta er um 1&1/2 tíma lestarferð frá Brisbane og Ying Han sótti mig á lestarstöðina, við tókum svo strætó að skólanum og skólaíbúðunum hennar, og þá mér til mikillar gleði, sá ég lifandi kengúrur í fyrsta skipti, vúhú.


The first weekend in October I went to the Sunshine Coast, an coastal area that is around 100km north of Brisbane. Ying Han, my classmate from Frankfurt is taking her exchange semester there and also Adam lives there with his fiancé, Mandy, but he was an exchange student at Frankfurt last semester. I went early in the morning with the train, it is a around 1&1/2 hour ride and Ying Han picked me up at the train station, we then took a bus to her campus and whoop whoop I finally saw some live kangaroos.

——————

 

Adam kom svo og sótti okkur og við skelltum okkur á ströndina sem er í tveggja mínútna göngufæri frá íbúðinni hans og Mandy. Eyddum svo restinni af deginum/kvöldinu í að spjalla, Adam steikti pylsur sem hann hafði fengið á markaðnum. Um kvöldið kenndi Ying Han okkur svo að búa til dumplings, nammi namm. Ég fór svo og gisti hjá Ying Han. Rosalega gaman að hitta þau öll aftur hérna í Ástralíu.


Adam then came and picked us up and we went to the beach which is literally in two minutes walking distance from Adam’s and Mandy’s place. The rest of the afternoon/evening we spent chatting and Adam fried some yummy sausages he had gotten from the market. Later in the evening Ying Han taught us to make dumplings, very yummilisious. I then spent the night at Ying Han’s place. So awesome catching up with them here in Australia.

——————

 

Fyrstu vikuna í október fóru Dan húsfélagi og Caitlin með mig á sushi train stað hérna í nágrenninu, algjör snilld að hafa uppgötvað hann, fyrsta mánudag og þriðjudag hvers mánaðar eru allir diskar á 2$ sem er mjög góður díll og fínasta sushi, svo er hann líka með ‘alvöru‘ lest, sem ferjar diskana í hringi hehe


The first week in October, Dan, my housemate, and Caitlin took me to a sushi train restaurant here in the neighbourhood, very nice to have found this place, first Monday and Tuesday of the month they have all dishes for 2$, a very good deal and good sushi also, and it even has a ‘real’ train for the dishes :Þ

 

——————

Staðurinn sem ég er búin að fara langoftast á er Cyber City, asíski staðurinn í dalnum. Fór í sömu viku með félögunum og þýskum sófalingum sem voru hjá þeim. Gaman að fara svona margir saman og geta smakkað allskonar rétti.


The restaurant I have been to most often is Cyber City, the Asian place in the Valley. Went there the same week with my friends and the German couchsurfers they had. So nice to go there with a big group and be able to share and taste all kinds of dishes.

 

——————

Já ég er farin að venjast köngulónum, aðeins… aðallega þessum litlu, því þær eru út um allt. Svo ég  er nánast hætt að öskra þegar ég sé þær og er fljótt að drepa þær með einhverju nærliggjandi. En um daginn þá fór ég út á svalir og það var þessi riiiisa könguló á svölunum. ég hljóp inn og bað húsfélagana að kíkja á hana. Nei nei, ég á sko ekki að vera hrædd við þessa því hún er vinaleg – einmitt !


Well I am starting to get a bit more used to the spider, mainly the small ones, cause they are everywhere. So I have almost stopped screaming when I see them and becoming quite quick to kill them with something at hand. But the other day I went out to our balcony and saw this huuuuuuge spider. I ran inside and asked my housemates to check it out. No, I shouldn’t be afraid, it isn’t big and it is friendly WTF!

 

——————

Föstudaginn eftir átti svo Mandy (kærasta Adam‘s afmæli) og hún þarf að vera í Brisbane nokkra daga í viku því hún er að læra hér, svo ég skellti mér með henni í afmælisdinner


The Friday after it was Mandy‘s birthday, she has to stay in Brisbane some days per week, so we went out after my ‘awesome’ Friday night class, to a birthday dinner.

 

——————

Næstu vikunni eyddi ég svo aðallega í lærdóm, þar sem það var farið að styttast í skil. Ég fékk svo boð í fínan dinner helgina eftir, þar sem deildin mín í skólanum var með borð á árlegu „Urban Design Alliance“ kvöldi. Það var ótrúlega gaman, fá tækifæri til að klæða sig í fínan kjól og hitta aðeins suma skólafélagana, kennaranna og aðra í ‚bransanum‘ utan skólastofunnar. Kíkti svo aðeins út á einhverja fína bari eftirá, ekki mínir týpísku staðir, en gaman að tékka aðeins á posh hluta Brisbane þegar maður er ofur fínn.


The next week I mainly spent studying, since due dates were getting closer. I then got an invitation to go to a fancy dinner, my department at uni had a table at this yearly “Urban Design Alliance” night. It was a lot of fun, getting the chance to dress up and meet some of my classmates, tutors and others in the urban design industry here in Brisbane. I even ended up going to some posh bars afterwards with one of my tutors and another girl, not my typical places, but interesting to check out the posh side of Brisbane when you are wearing a very fancy dress.

 

——————

Já síðustu viku eyddi ég líka að mestu leyti í lærdóm, þar sem síðasta föstudag voru skil á stórri ritgerð og svo fór ég í próf á föstudagskvöldið. Reyndar tók ég mér smá pásu á fimmtudaginn og hitti Andreu frænku og kærasta hennar Ingvar, sorry núna unnusta. Þau eru á ferðalagi um Ástralíu, byrjuðu í Sydney og eru að vinna sig upp norður eftir austurströndinni. Það var rosalega gaman að hitta þau og fyndið að tala í fyrsta skipti íslensku meðal almennings hérna í Ástralíu. Þau voru búin að túristast eitthvað áður en ég hitti þau, svo ég rölti með þeim gegnum miðbæinn, við fórum svo í bátsferð eftir ánni og spjölluðum heilmikið.


Last week I also spent mostly studying, since last Friday I had a big paper due and then I had an exam on Friday night. I did take a good break on Thursday and met up with my niece, Andrea and her fiancé, Ingvar. They are travelling through the east coast, started in Sydney and working their way up north. It was awesome to meet up with them and even a bit strange to talk Icelandic in public for the first time here down under. They had already done some of the touristic stuff in Brissy before I met up with them, so I just walked with them in South Bank and the CBD, we took a boat trip on the river and talked a lot.

 

——————

Á föstudaginn náði ég svo að skila ritgerðinni minni, sem var afar gott og fór í prófið um kvöldið eftir ekki mikinn svefn, en það er nú venjan hjá mér svona á lokasprettinum. Veit nú ekki hvernig gekk ennþá, en er allavega mjög glöð að vera búin með tvö fög, af fjórum, og yndislegt að þurfa ekki að fara aftur í tíma á föstudagskvöldum :) Þetta er í fyrsta skipti sem ég fer í próf sem eru 100 spurningar, allt rétt eða rangt, og sumar voru soldið tricky, en já það lemur í kjós.

Síðasta laugardag vorum við svo með partý heima. Annar húsfélaginn er að flytja til Saudi Arabíu í eitt ár til að vinna og var þetta því kveðjupartý fyrir hann. Það kom fullt af fólki og hörkustuð, ég gaf honum þennan fína bol sem hann er í á myndinni fyrir neðan, skv. google þýðingarforritinu, á þetta að þýða, „Ég er ekki Ameríkani“. Hann fékk líka aðrar fínar gjafir, pappa íranska forsetann sem var mjög vinsæll á myndatökum og er enn hérna í góðum fíling í stofunni og svona sandkassadót, fötu og skóflu.


Last Friday morning I managed to hand in my big essay and then I had an exam on Friday night. Of course I didn’t get much sleep before, just typical me, too much of a deadline person. I have no idea how it went, but at least I am very happy having finished two subjects out of four and I don’ t have to attend classes on Friday nights anymore. This is the first exam I have taken that has 100 questions, all true or false and some were a bit tricky, but we will see.

Last Saturday we then had a party at our place. One of my housemates is moving to Saudi Arabia for a year to work and this was his farewell party. We had lotz of people over and it was a lot of fun. I gave him this T-shirt, saying “I am not an American” (according to google translate). He also got some other nice gifts, a cardboard of the Iranian president who was very popular for photo shoots, and is still rocking it in our living room and a kids sandbox kit  (a bucket and shovel).  

 

——————

Jæja, eftir öll skilin á föstudaginn er ég búin að vera smá tíma að koma mér í gang fyrir næsta verkefni. Ég ákvað að taka helgina alveg off frá lærdómi, hlaða batteríin og er núna að vinna að hönnunarverkefni og kynningu sem er 9.nóv. Það er soldið tricky að skipta yfir í hönnunargírinn þegar maður er búinn að vera að skrifa og finna heimildir og lesa síðustu tvær vikurnar en það er allt að koma. Tók smá net tjékk í gær og samkvæmt flestum netprófum er ég jafnvíg á vinstri og hægri heila, þar sem vinstri er meira rökréttur og hægri meiri ‚listahliðin‘, nú þarf ég bara að læra bestu leiðina að skipta á milli hehe. En já, hönnunarverkefnið gengur, þetta er hópvinna þar sem við eigum að koma með eina hugmynd af aðal plani fyrir svæðið sem við erum að vinna með, hérna í Brisbane, einn er með húsnæði, annar með ‚auðlindir‘ og svo ég með opin svæði. Svo já, við erum að vinna að sameiginlegu plani og svo með okkar eigin hugmyndir, nokkuð skemmtilegt. Þessir tímar hafa þó verið soldið ruglingslegir í vetur og ég var glöð þegar ég heyrði marga skólafélagana vera á sömu skoðun, margir aðstoðarkennarar, hver með sýnar skoðanir og svona, en maður er að læra ýmislegt og gaman að fá að kynnast hönnunarhlutanum betur. Ég kíkti aðeins út á þriðjudaginn, það er sófalinga‘fundur‘ annan hvern þriðjudag. Svo ég ákvað að skella mér aðeins eftir tíma, síðasti tíminn sem ég fór í hérna í Brisbane. Ætlaði nú bara að vera stutt og fara snemma heim, en þá er nú oft týpískt að maður fer að gera eitthvað allt annað. Svo ég skellti mér með Sabrinu, þýskri sófavinkonu minni í dalinn, kíktum á tónleika hjá vinkonu hennar og áttum ljómandi hresst kvöld svona í miðri viku.

Well, after all the uni activity on Friday, it has been taking some time to get back into gear for my next assignment. I decided to take the weekend totally off to recharge my batteries and now I am working on a design project due on the 9th of November. It is a bit tricky switching over to the design part after being mainly reading and researching for the last two weeks, but I am getting there. I did a bit of a internet search and took some tests, according to them I have an equilibrium between my right and my left brain, most people seem to be drawn to one side, but the left is supposed to be more your logical side and the right, your ‘artistic side, so now I just have to find out how to switch between them hehe. But yes, the design project is going, so far so good, it is a group work where we have to produce one ‘masterplan’ together for the area we are working on, but then we have our individual components, one has housing, the other resources and I have open spaces. So yes, we are working on a mutual plan with our own ideas, pretty interesting. The classes during the semester have though been a bit confusing, and I was glad when I was talking to my classmates that was not just me, but yes we have a lot of tutors, all with different ideas, but I am learning a lot of new things and especially getting to know the design part more. Well, I went out a bit after the class on Tuesday, there is a couchsurfing ‘meeting’ every other Tuesday. So I decided to check it out, just a bit, after my last class here in Brisbane. I was just going to stay for a short while and go home early, but then you typically do something else. So I headed off to the Valley, with Sabrina, my German couchsurfing friend, checked out a very good concert a friend of hers was having and had a very nice evening, meeting interesting new people in the middle of the week.

 

——————

Jæja, býst við að þetta sé langlengsta færslan sem ég hef skrifað til þessa, svo til hamingju ef þið hafið í alvörunni enst svona langt, eða kannski rennduð þið yfir þetta í nokkrum pörtum, hver veit. Allavega finnst mér sjálfri gaman að skrifa svona ‚dagbók‘ og enn skemmtilegra að vita til þess að maður eigi þetta eftir á, gott fyrir gúbbífiska eins og mig. Planið næstu vikurnar er aðallega að læra, fram til 12.nóvember c.a. en þá plana ég að skila ritgerðinni sem ég á eftir en er næstum búin með. Svo getur sumarið hafist og nokkrum dögum síðar kemur Logi loks hingað til mín og get ég ekki beðið eftir að fá hann loksins hingað down under.

——————

Well, I guess this is definitely the longest post I have written so far, so congratulations if you actually lasted this long, or maybe you skimmed over it part by part, who knows. I like doing this anyways, since then I have a kind of a diary afterwards. The plan for the next weeks is mostly studying, until c.a. the 12th of November, when I hand in my essay that I am almost done with. Then summer can arrive and a few days later, Logi, my boyfriend will come down under and I can’t wait.


——- Brisbane 2.-26.October 2010 


Brisbane fimmti hluti / part five

Jæja, þá er frívikunni að ljúka. Var með 40% kynningu síðasta föstudag og fór svo beint í 2000km Road Trip norður upp til Cairns. Fór með öðrum sófaling sem er Ástrali og heitir Blair og við fórum á eldgömlum húsbíl sem annar sófalingur á og hafði skilið eftir í Brisbane og vantaði að fá bílinn sinn uppeftir. Hér má sjá ‚fákinn‘

Well, then my vacation week is almost finished. I had a 40% presentation last Friday and then I went straight on a 2000km road trip with another couchsurfer, an Aussie named Blair, north up to Cairns. We were taking a very old campervan up north for another couchsurfer that lives up there and had left the van in Brissy.


——————

Hittum fullt af hressu fólki á leiðinni, hér er ég og ferðafélaginn í Airlie Beach með John, sófaling sem býr þar á bátnum sínum. Nafnið mitt var ekki alveg að virka fyrir fólkið Í Airlie, svo ég notaði Early nafnið mitt sem Gunni bró gaf mér fyrir löngu og auðvitað svínvirkaði það.


 

We met a lot of fun people on the way, here I am with my travel buddy in Airlie beach with John a couchsurfer that lives there on his boat. My name was not easy for the people in Airlie, so my alter-name my brother gave me a long time ago, Early, worked very well instead.


——————

Því miður rigndi mikið annan daginn svo það var ekki mikið skoðað í Airlie, en væri alveg til í að fara þangað aftur

Unfortunately it rained a lot on the second day so we didn‘t see so much in Airlie, but I would love to go there again


——————

Á þriðja degi kom sólin loks almennilega fram svo það var stokkið á strönd í Bowen


On the third day the sun finally came out, so we used the oppertunity and went to the beach in Bowen for a bit


——————

Héldum svo áleiðis til Townsville, skoðuðum bæinn aðeins og fengum okkur fish&chips, gistum svo hjá þýskum sófaling þar

Then we went on our way to Townsville, checked out the town a bit, had some fish and chips and caught up with a German couchsurfer my travel buddy knows and stayed at her house for the night


——————

Á fjórða degi komumst við svo á áfangastað, stoppuðum á leiðinni og fengum okkur kjötbökur, áströlsk hefð og nokkurskonar þeirra innlendi skyndibiti, svo ég held ég sé hætt að reyna að fá mér kebab hér, búin að reyna tvisvar og þeir valda mér alltaf vonbrigðum, en kjötbökurnar eru góðar. Gaman að sjá landslagið á leiðinni, grænu fjöllin, sykurreyrinn og bananatrén. Hef samt ekki ennþá séð kengúru, orðið soldið skrítið, en ég tel ekki með kengúrurnar sem ég sá ekkert sérstaklega sprækar í vegkanntinum. Enduðum svo í Cairns og gistum þar hjá gömlum skólafélaga ferðafélagans.




On the fourth day we got to our destination. Stopped on the way for some meat pies, a very Australian tradition and kind of their domestic fast food, I think I have stopped trying the kebabs here, tried twice and they always disappoint me, but the meat pies are delicious. So nice to se all the different landscape on the way, the green mountains, sugar canes and banana trees. Haven’t still seen any kangaroos though, getting quite silly, well, I don’t count the road kills on the way :( We ended up in Cairns and stayed the night at an old schoolmate of my travel buddy.


——————

Eftir rúmlega 2000km keyrslu í húsbíl þá var ekki slæmt að geta flogið til baka.

Bless Cairns / Good Bye Cairns

Hæ Brisbane / Hello Brissy

After around 2000km drive in a very old caravan it was not bad to fly back ‘home‘ to Brissy

——————

Kom svo heim seint á þriðjudaginn og á miðvikudagskvöldið fór ég með Tom í þýska klúbbinn í Brisbane. Hann er að læra þýsku og fór ég með honum að hitta aðra skólafélaga og kennarann, drekka nokkra þýska bjóra, borða þýskan mat og mikilvægast af öllu, tala þýsku í heilt kvöld. Afar gott að æfa aðeins þýskuna hérna down under

I came home late on Tuesday and on Wednesday night I went with Tom to the German club in Brisbane. He is studying German and I went with him to meet some of his uni-mates and their teacher, drink a couple of German beers, eat German food and most importantly, speak German for a whole evening. Very good to practice the German a bit here down under.


——————

Svo við hittum þennan stórkostlega persneska kött á leiðinni heim, Marta lítur út eins og mús við hliðina á þessum haha:O

We stumbled across this amazing persian cat on our way have from the club, my exotic cat back home, Marta, looks like a mouse compared to this one :O


——————

Framundan er svo að mestu leiti lærdómur, eins og ég sagði áður á ég að skila tveimur stórum ritgerðum eftir allt of stuttan tíma :S Veit ég geri nú reyndar eitthvað skemmtilegt líka inn á milli. Á morgun ætla ég að kíkja á Sólskins ströndina (The Sunshine Coast), hitta Ying Han bekkjarsystur mína frá Frankfurt, skoða strandirnar og vera hjá henni í eina nótt.Hver veit nema ég sjái kannski lifandi kengúru :Þ

——————

The following weeks will mostly be dominated by studying, but as I said before I have to hand in two very big papers way too shortly :S But I know I will do some fun stuff in between. Tomorrow I am going to the Sunshine Coast to visit Ying Han, my classmate from Frankfurt, check out the beaches and spend one night with her. Maybe I will even see a kangaroo :Þ


——- Brisbane 24.-29.September 2010


Brisbane fjórði hluti / part four

Er engan veginn að fatta að ég sé búin að vera hérna í Ástralíu í tæpa tvo mánuði, finnst ég rétt nýkomin! En skólinn er á góðu róli og styttist í seinni hlutann. Það er nokkuð gott að hér þarf maður alltaf að sýna einhverja vinnu í hverri viku og mörg ‚milli‘ skil svo maður kemst ekkert upp með að slóra þar til kemur að prófum. Er búin að skila inn tveimur ritgerðum og vera með tvær kynningar, svo næsta föstudag er stór kynning. Þar á eftir er viku frí og svo er það lokaspretturinn, skil á tveim stórum ritgerðum og próf 22.okt. og svo hönnunarverkefnisskil 9.nóv. og þá er önnin búin og maður getur farið að slaka á fyrir alvöru hér down under, vúhú.

——————

It is hard to realise that I have actually been in Australia for almost two months now, I feel like I just got here! Uni is doing good and the finish line is just around the corner. It is pretty good that you always have to show some work here every week and many intermediate hand ins, so you can’t get away with slacking off until the end of the semester. I have already handed in two small essays and had two presentations. Next Friday I have a big final presentation, then a week holiday and after that the home stretch ending with a hand in of two big essays and an exam on the 22nd of October and a design project hand in on the 9th of November. After that I am finished and I can relax for real here down under :)

——————


Jamm, þrátt fyrir að ég sé búin að vera hér svona lengi þá verð ég að játa að ég hef ekki enn séð kengúrur eða kóalabirni, en það hlýtur að koma að því fljótlega. Er þó að verða örlítill meiri Ástrali því ég keypti mér svona um daginn, og hér eru svona strandskór kallaðir thongs, afar skrítið.

Yes, so even if I have been here so long I have to admit that I haven‘t seen a kangaroo or a koala yet, but that must happen soon. I am though becoming a bit more Australian every day. Bought these shoes the other day, an essential Australian wear, flip flops, but here they are not called flip flops, but thongs, how strange.

——————

Fyrir tveimur helgum síðan var upphafdagur Brisbane hátíðar, menningarhátíð sem stendur yfir þar til næstu helgi og inniheldur fullt af atburðum út um alla borg. Á fyrsta deginum var rosaleg flugeldasýning og fór ég með fólkinu heim til Steven‘s. Hann býr rétt hjá okkur og er með svakalegt útsýni yfir borgina. Það sem kom mér mest á óvart var hvað flugeldasýningin var lengi, rosalega ljósashow í yfir 20 mínútur en skotið var upp frá pöllum og af brúnum yfir ánni sem liggur þvert í gegnum borgina. Magnaðasta við sýninguna voru tvær F-111 þotur sem flugu yfir og brenndu eldsneyti sem bókstaflega lýsti upp himininn. Skv. upplýsingum sem ég fann, brenna þær um 165 lítrum af eldsneyti….. á sekúndu! Þessar þotur eru farnar á ‚eftirlaun‘ hér svo þetta er líklega með síðustu skiptum sem þær sjást á sýningum sem þessum.


A fortnight ago it was the start of the Brisbane festival, a cultural art festival that is on until next weekend with many happening around the city. On the first day there was a massive firework show, so I went with my housemates to Steven’s place, he lives close to us and has an awesome view over the city. What surprised me the most was that the firework show was on for over twenty minutes and they were shot from platforms and the bridges on the river. The most amazing part of the show were two F-111 jets that flew over the city and burned fuel that literally lid up the sky. According to information I found, the jets burn around 165 litres….. per second! These jets have already ‘retired’ so this was probably one of the last time they are used for shows like this.

——————

Í síðustu viku fór ég loks aðeins út fyrir borgina en ég kíkti með nokkrum nýjum sófalingum í eyju sem heitir Stradbroke, yfirleitt bara kölluð Straddie og er ekki nema um 30km frá Brisbane. Við fórum í dagsferð og það var alveg yndislegt að sjá og finna sjóinn á ný og ekkert smá fallegar strendur og útsýnið á eyjunni.


Last week I finally went out of the city a bit, but I went with some couchsurfers to an Island called Stradbroke, usually just called Straddie and it is just over 30 km from Brisbane. We went on a day trip and it was just wonderful to see and feel the ocean again and the beaches were so beautiful and the view on the island too.

 

——————

Skellti mér svo á tónleika síðustu helgi á frábærum tónleikastað sem er í grasagarðinum hjá skólanum mínum. Sabrina, þýsk sófavinkona mín frá Heidelberg bauð mér með sér og við sáum hljómsveit sem heitir Bullet For My Valentine, frekar amerísk ‚metal‘ hljómsveit en það var frábært að fara á svona stóra tónleika og á svona frábærum stað. Við lentum í því að það kom gamall fullur sköllóttur kall að spjalla við okkur, sem spurði okkur þeirrar skemmtilegu spurningar, hvort ég væri mamma hennar. Ég er fædd ’81 og hún ’88, svo við vorum ekki alveg vissar hvor ætti að vera meiri móðguð, ég fyrir að vera eldgömul eða hún barn, svo við ákváðum bara að gera grín af þessu og kalla ég hana núna bara þýsku dóttir mína.


I went to a big concert last weekend. The concert was at a venue called the Riverstage, situated in the botanical gardens, close to my uni. Sabrina, a German CS (couchsurfing) friend of mine from Heidelberg, invited me with her and we saw a band called Bullet For My Valentine. A very American ‘metal’ band, but it was still super nice to go to a big concert like this at a very nice outdoor venue. We met an old drunk bald guy that asked me if I was her mother. Me born in ’81 and she in ’88, so we weren’t sure which one of us should be more offended, me for being really old or she just a kid, so we just decided to make fun of it and I just call her now my German daughter.

 

——————

Kíkti svo í picnic á sunnudaginn, aðeins að njóta sólarinnar og hitta nýtt fólk

Then I went to a small picnic on Sunday, just to get some sunrays and meet new people

——————

 

Í vikunni áttum við svo að koma með konsept módel í hönnunartímann sem ég er í, s.s. eitt módel per hóp og halda örkynningu á konseptinu sem hópurinn er með. Það var mjög áhugavert og skemmtilegt, fyrir utan þegar við vorum að taka myndir af módelinu þá rak hópfélaginn minn óvart hornið á borðplötunni sem við notuðum sem bakgrunn í hausinn mér. Verð að játa að það var alls ekki gott og daginn eftir var hausinn á mér mjög skrítinn. Ég fékk líka smá paranóju kast og fór að gúggla og fór að hafa áhyggjur að ég væri kannski í alvörunni slösuð, haha, en ég er hress og kát og paranójan farin sem betur fer.

This week at uni, we were supposed to bring a concept model for my design class, that is, one model per group and then give a very short presentation about our concept. It was very interesting and fun, besides the fact that when we were photographing the model, one of my group members was aligning the table plate we used as background, me aligning the model and volla, I got hit in the head with the corner of the plate. I have to admit, that hurt pretty bad and the day after my head felt very weird. I had a bit of paranoia, googling and worrying I might actually be very injured, haha, false alarm, I am good and the paranoia has completely gone.

——————

 

Í gær kíkti ég svo með Tom, Hayley og skólafélaga hennar í úthverfi sem heitir Sunnybank. Þetta hverfi er þekkt sem svokallað Kínahverfi Brisbane. Reyndar er þetta ekki túrista-Kínahverfið sem allir þekkja og er í dalnum, heldur er þetta hverfið þar sem flestir Asíubúar í Brisbane búa. Þar er hægt að fá rosalega góðan mat frá allri Asíu og svo eru risastórir asískir súpermarkaðir með allskonar dóti. Við fengum okkur rosalega góðan Víetnamskan hádegismat og fengum okkur skrítna drykki sem innihéldu t.d. núðlur.

 

’Sérstaki’ drykkurinn hans Tom/ Tom’s special drink

Fjórlita drykkurinn minn / My four colour drink

Kaupir hrísgrjónapott og færð öskubakka frían með, en ekki hvað / Buy a rice pot and get a free ashtray with, very convenient

 

Yesterday I went with Tom, Hayley and her classmate to a suburb called Sunnybank. This suburb is known as the Chinatown of Brisbane. Well, actually it is not the tourist-Chinatown everybody knows in the Valley, but a suburb where most of the Asian population of Brisbane lives. There you can get all kinds of yummy food from all over Asia  and then they have huge Asian supermarkets with all kinds of strange things. We had a very good Vietnamese lunch and enjoyed some strange drinks that even contained noodles.

——————

Jamm, ætla að vera rosalega dugleg að læra í vikunni, fyrir kynninguna á föstudaginn. Svo er jafnvel planið að kíkja í smá ferðalag norður, sjá smá af Ástralíu í frí vikunni og vera vel endurnærð fyrir lokasprettinn. Svo er reyndar líka valfrjáls skólaferð til Melbourne í byrjun október þar sem á að kíkja á borgaskipulag og heimsækja fyrirtæki. Langar rosalega að fara í hana líka en þarf að tékka betur á tíma og peningum, Lemur í kjós ;)

ps. setti nokkrar myndir hérna fyrir neðan frá Straddie

——————

Jebb, I have to very harsh on myself this week and focus on studying hard for my presentation next Friday. Then I will hopefully go on a small trip, explore a bit of the Australian landscape in my vacation week to have full study strength for the home stretch.  Then there is also an optional study trip to Melbourne in the beginning of October, I really want to go to that one too, but I have to check better time and money, we will see :Þ

ps. I put in some extra photos down below from my trip to Straddie.


——- Brisbane 3.-17.September2010


Fleiri myndir frá Straddie Eyju / more pics from Straddie Island :)

Brisbane þriðji hluti / part three

Mér finnst alveg ótrúlegt að ég sé búin að vera hérna í Brisbane í meira en mánuð, einn búinn, minna en fimm eftir. Ég ætlaði að vera löngu búin að setja inn einhverjar fréttir en það var of mikið að gera í skólanum síðustu tvær vikurnar og þá þarf eitthvað að sitja á hakanum.

——-

I find it pretty amazing that I have been here in Brisbane over a month now, one down, less then five to go. I had planned to write something for a while, but school has been pretty busy for the last two weeks, so then something has to wait….

 

——————

en já, þrátt fyrir mikinn lærdóm er ég líka búin að gera ýmislegt skemmtilegt. Einu sinni í mánuði er svokallað “ferðatösku-grams” í miðbænum, fólk getur skráð sig og komið með max 3 ferðatöskur hvert og selt það sem það vill, algjör snilld. Ég fór þangað með Tom & Ellen ásamt þýska sófalingnum, Simone. Hitti svo einnig YingHan bekkjarsystur mína frá Frankfurt á markaðnum. Keypti svakalega jummí ‘cupcake’ og einhver föt á skít og kanil og ég, Simone og YingHan skelltum okkur svo á afar góðan og ódýran asískan veitingastað. Næstu helgi er einmitt aftur ‘ferðatösku-grams’, ætla sko ekki að missa af því.

but yes, in spite of a lot of studying I have also managed to do a lot of fun things around the city. Once a month there is a so called ‘Suitcase Rummage’ in the centre, people can sign up and bring up to 3 suitcases and sell what they want. I went with Tom & Ellen, their German couchsurfer, Simone and also I met YingHan there, my classmate from Germany. I bought a very yummy cupcake and some super cheap clothes. Me, Simone and YingHan then went to a very good and cheap Asian restaurant in the city. The Suitcase Rummage is again next week, I will definitely not miss that.

 

 

——————

Er svo einnig búin að fara nokkru sinnum í ‘Dalinn’, sem er svo kallað partýhverfið hér, hverfið heitir Fortitude Valley og er yfirleitt bara kallað ‘The Valley’. fyrir rúmum tveimur vikum fór ég í fyrsta skipti þangað með húsfélögunum og vinum þeirra. Byrjuðum á að borða á stað í dalnum sem heitir Cyber City 2002, einnig góður og ódýr asískur veitingastaður og þessi staður er eins og margir, svokallaður BYO staður, en BYO stendur fyrir “Bring-Your-Own” og er þá verið að tala um áfengi. Þetta er afar vinsælt hérna í Ástralíu, held þetta sé aðallega vegna þess hversu erfitt það er að fá áfengisleyfi, sem skýrir líka ástæðuna af hverju flestir ‘barir’/skemmtistaðir hér eru hótel, því með því að bjóða upp á mat og gistingu er mun auðveldara að fá áfengisleyfi. Þegar veitingastaðir eru BYO þá taka þeir yfirleitt svokallað tappagjald sem er yfirleitt ekki hátt og margir barir selja í staðinn inn og eru með fólk á barnum sem sér um að merkja og geyma drykkina þína.

I have been a couple of times to the Valley, the party area of Brisbane, the name of the district is Fortitude Valley, but usually just called the Valley. Just over two weeks ago I went there for the first time with my housemates and friends. We started out eating at this restaurant called Cyber City 2002, also a very good and cheap Asian place and this place is like many other places here, so called BYO place, but BYO stands for “Bring-Your-Own” meaning booze. It is very popular here in Australia, think it is mainly because how hard it is for places to get a liquor licence, which also explains why so many bars/clubs here are actually hotels, but by offering food and accommodation it is much easier to get a liquor licence. When restaurants are BYO’s they usually charge a small amount as a ‘tap-fee’ and many bars have entrance fees instead and have people at ‘the bar’ in charge of labelling and cheap your drinks in a cold place.

 

 

——————

Fyrir tveim vikum fór ég svo með Tom, Ellen, Neran og ‘nýja’ ameríska sófalingnum þeirra, Hayley í miðbæinn en þau höfðu heyrt um kaffihús sem væri nokkurn veginn falið. S.s einu leiðbeingarnar til að finna kaffihúsið var aðalgatan sem það var við, það væri í gömlu verksmiðjuhúsi, í húsasundi og það þyrfti að fara undir bílahlið til að finna það. Neran og Hayley voru búin að fara þangað áður svo þau héldu sér fyrir aftan okkur meðan við löbbuðum fram og aftur um götuna. Tók smá tíma að finna það, en það tókst og er þetta afar kósý kaffihús

Two weeks ago I went to the city with Tom, Ellen, Neran and a ‘new’ American couchsurfer they had, Hayley. They had heard of this hidden cafe and the only directions to find it, was the street it was on, it was in an old factory house, in an alley and under a boom gate. Well, Neran and Hayley had been there before so they stayed quietly behind us when we searched, we found it in the end after walking up and down the street a bit, and it is very cosy.

 

 

——————

Í sömu viku átti einmitt Andy, annar herbergisfélaginn ammæli, svo hann var með partý á Pólska Klúbbnum, bar hérna ekki svo langt frá, þar var kjaftað og drukkinn pólskur bjór sem endaði svo á því að við skelltum okkur í læknadeildarpartý með einum vini þeirra

The same week it was also Andy’s birthday (one of my housemates) so he had a party at the Polish Club, a bar not so far from here, there we had some nice polish beers and chats ending up with going to a med school party with their friend Daley.

 

——————

Síðustu helgi voru svo kosningar hér í Ástralíu, það er búið að vera gaman að fylgjast með kosningunum sem utanaðkomandi, en eins og flestir vita urðu niðurstöðurnar þannig að hvorugur stóru flokkanna fékk hreinan meirihluta svo það er allt enn í frekar lausu lofti hérna. En þá helgina kíkti ég einmitt á tónleika og í dalinn að tjútta, svo á laugardagsmorgninum fór ég á markað í West End sem er mjög vinsæll til að kaupa ferskt grænmeti og annað góðgæti, Dan annar húsfélaginn og kærasta hans Caitlin voru nýbúin að fá afhenta búninga sem þau keyptu sér á netinu, svo ég fór á markaðinn með risaeðlu og kisu :)

Last weekend there were elections here in Australia, and it has been quite interesting following the elections as an outsider, but as most already probably know, the results were that neither of the big parties had a majority so it is all still kind of up in the air. But that weekend I went to a cool concert and then to the Valley again and Saturday morning I went to the weekend markets in WestEnd, a very popular market to buy fresh vegetable and all sorts of yummy stuff, Dan one of my roommates and his girlfriend Caitlin had just received costumes they ordered online, so yes, I went to the market with a dinosaur and a cat :)

 

 

——————

Á kosningakvöldið var svo kosningapartý hjá Daley, sem er vinur strákana og sófafólksins. Það var hálfgert báta-þema í partýinu en frjálslyndi flokkurinn hafði komið með afar skrítið kosningaloforð fyrir kosningarnar: ‘stöðvið bátana’, en Ástralía er að glíma við akkurat öfug vandamál og flest Evrópulönd, eða mikla fólksfjölgun. Um fjórðungur þeirra 21 milljón manns sem búa í Ástralíu þá er um 1/4 ekki fæddur hér og 2008-2009 fluttu um 160.000 manns til Ástralíu, bara eins og hálft Ísland. En já, nokkuð sérstök afstaða gegn innflytjendum af frjálslyndum flokk, en við þekkjum nú svo sem fleiri dæmi um svoleiðis…..

On the election night, there was an election party at Daley’s, he lives in the same neighbourhood as me, and is a friend of my housemates and my couch-hosts. There was a short of boat theme at the party, since  the Liberal party at a very strange slogan as one of their main campaign slogan, ‘Stop the Boats’, but Australia is dealing with some problems opposite most western-European countries, very rapid population increase. But around one fourth of the 21 million living in Australia are not born here and between 2008-2009, around 160.000 people moved to Australia, around the half of the population of Iceland. Yes, a very strange stand towards immigrants for a liberal party, but unfortunately we know many more examples of that…..

 

 

——————

Og já eins og ég sagði áðan, þá er búið að vera brjálað að gera í skólanum, flestir sem ég þekki eru bara að taka eitt eða tvö fög með vinnu, held við séum ekki nema 4 eða 5 sem erum að taka öll fjögur fögin, en þessi master er eins árs master svo já, vinnuálagið er frekar mikið ef maður er að taka fulla önn. Í síðustu viku var einmitt kynning í einu fagi og skil á svokölluðu ‘project proposal’ fyrir annað verkefni. Kynningin gekk nú ekkert voðalega vel, kennararnir klúðruðu tímamálunum sem varð til þess að fyrstu þrír hóparnir fengu 2 klst. fyrir sínar kynningar en þegar kom að okkur, þriðja síðasta hópnum, var komið eitthvað tímastress í kennarana og við vorum meira að segja rænd um tíma, en ég skilaði allavega inn góðum blöðum og vona að þau gildi meira en þær 3 mínútur sem ég fékk að tala, en verkefnið gildir 40% og snérist um að kortleggja South Bank svæðið sem ég talaði um í síðustu færslu.

yes, as I said before, uni has been very busy. Most people I know at school are only taking one or two subjects and working, I think we are only around 4-5 taking all a full, 4 unit semester and this master is a one year master so the work load is pretty intense if you take a full semester. Last week I had a presentation in one subject and a hand in of a project proposal in another subject. The presentation did not go so good, the teachers totally blew the time management which resulted in the first three groups getting over two hours for their presentations but when it was our turn, the third last group the teachers had suddenly got time stressed and they even robbed us of some our time, but the sheets I handed it took a lot of work and I hope they value more than the 3 minutes I had to present, but this project is supposed to value 40% of the unit and was about mapping the South Bank area I mentioned in my last blog.

 

 

——————

Kitler er afar skemmtilegur köttur, stundum er það er lokað inn til mín þá kemur hann og klórar fyrir utan hurðina og mjálmar þar til maður opnar fyrir honum, hann heldur mér stundum kompaní þegar ég er að læra, enda passar hann afar vel við rúmfötin mín, í síðustu viku var hann líka svo góður að koma heim með mús fyrir okkur :O


Kitler, ‘my’ aussie cat is very fun cat. Sometimes when you have your door closed he scratches outside the door and mews a bit until you let him in. He sometimes keeps me company when studying, and he fits very well in with my bed sheets. Last week he was so nice to bring home a mouse for us.

 

Í þessari viku er ég svo aðallega búin að vera að læra, var með for-kynningu fyrir hina ritgerðina á föstudaginn og þurfti að velja mér bók til að skrifa bóka-umsögn um fyrir næsta föstudag. Já þessi mikli lærdómur hamlar mann í því að geta ferðast almennilega um hérna fyrr en önnin er búin, en í staðinn reyni ég að gera ýmislegt skemmtilegt milli lota, svona svo maður verði ekki geðveikur og hafi einhverja gulrót í lok lærdómsdags. Á miðvikudaginn með nokkrum úr Sófa-hópnum hérna, en á hverri borg er svokölluð hóp-síða þar sem fólk getur skrifað inn ef það er að fara að gera eitthvað skemmtilegt og aðra hverja viku hérna eru kaffihúsa’fundir’, þar sem fólk sem býr hérna og er að ferðast hérna um getur hist og rætt málin, ætla einmitt að kíkja í næstu viku á svoleiðis fund, en á miðvikudaginn var bara svona óformlegur hittingur, svo ég hitti nokkra á stað í dalnum sem bíður upp á $5 dollara steik og spurningakvöld á miðvikudögum.

This week I have mainly been studying, had a preliminary presentation for one of my big theses on friday and had to pick a book for a book review in another subject. Yes, this hard studying really limits all the travelling I wanted to make here until the semester finishes, but instead I try to do a lot of fun stuff within the city between study sessions, so I don’t get crazy and have a carrot at the end of a study day to look forward to. Wednesday night I went and met some people that are part of the Brisbane couchsurfing group, this was just an informal get-together at a bar in the Valley that serves $5 steaks and has trivia night on Wednesday. Every other Tuesday there is a ‘formal’ get-together, I’m thinking to check that out next week.

 

 

——————

Á föstudaginn var ég búin að ákveða að ætla að fara bara heim eftir skóla, en eins og áður sagði er ég í tímum til 20 á föstudagskvöldum, en heyrði í sófafólkinu mínu sem sagði mér að það væri verið að opna bar við hliðina á falda kaffihúsinu og þau ætluðu að skella sér, svo fyrst Erla var nú hvort sem er í borginni, þá var um að gera að kíkja, stundum fínt að kíkja aðeins út án þess að hafa sig til hehe. Flottur staður, er einmitt svona BYO staður eins og margir, nokkrar hljómsveitir, misgóðar, misháværar og Tom&Graham tóku sig til og sungu með í einu lagi.

On Fridays I always have class until 8pm, pretty shitty, so this Friday I just thought to go home and chill, but I heard from my CShosts and they told me that a bar was opening beside the hidden cafe, so since I was already in the city, I decided to check it out. Always good to meet people after a long study day. It’s a pretty cool place, also a BYO like many, there were some good and bad bands, also loud once playing and Tom&Graham even sang a long a bit.

 

——————

Í gærkvöldi var ég svo boðinn í mat til Desmond, en hann er vinur Poly’ar, bekkjarsystur minnar frá Frankfurt. Hún er frá Brasilíu og kynntist Desmond fyrir nokkrum árum þegar þau leigðu saman í Perth. Núna býr hann hér svo Poly kynnti okkur. Desmond er einmitt frá Malasíu og í matarboðinu var líka Malasískt par og ástralskur strákur sem Des þekkir. Des eldaði afar góða lamb og nauta ofnsteik og einnig var hann með chillímarinerað nautasnitsel, fór heim ansi södd :)

Yesterday I was invited to a dinner to Desmond, but he is a friend of Poly, my classmate from Frankfurt. She is Brazilian and met Desmond a few years back when they rented together in Perth. Now he lives and works here in Brissy so Poly introduced us. Des is originally from Malaysia and in the dinner party were also a couple from Malaysia and an Aussie guy. Des cooked a very good lamb and beef roast and he also had marinated beef snitchel with chilli, super good and I went home very full :)

 

——————

Þrátt fyrir mikinn lærdóm og nokkur góð tjútt er ég líka búin að vera nokkuð dugleg að baka, alveg óskiljanlegt, hehe. Margir sem ég hef kynnst hérna eru mjög duglegir að baka sín eigin brauð, kökur, búa til karrý og pestó og allskonar, svo þetta hefur hvatt mig til að vera sjálf dugleg að búa til eitthvað nýtt. Ágætt þegar maður er heima að læra að taka sér pásu frá lærdómnum og búa til eitthvað sem maður sér og getur notið árangursins strax sjálfur :) Bakaði mér rosagott bananabrauð í síðustu viku og möffins, prufaði svo að baka brauð sem tókst mjög vel í annarri tilraun, tókst að drepa gerið í þeirri fyrstu með nokkuð skondnum árangri og gerði síðan karamellu/kókos/hnetukökur í gær sem ég fór með í matarboðið og voru líka afar bragðgóðar, þó útlitið hafi aðeins klúðrast. Held ég eigi eftir að baka bananabrauðið oft, ótrúlega auðvelt að gera, og gott að skera niður í sneiðar og skella inn í frystinn og eiga þá alltaf eitthvað til að taka með sér í nesti :)

Despite a lot of studying and some good partying, I have also been quite active baking new things, unbelievable, hehe. Many I have gotten to know here bake their own breads, cakes, make curries and pesto’s’ and all sorts of things, so this has encouraged me to bake and make things. Pretty good when you are home studying, taking small breaks in-between and make something you can see and enjoy the results straight after :) I baked a very good banana bread last week, some yogurt muffins and tried to bake a bread for the first time. That worked out very well in my second try, managed to kill the yeast in my first try with funny results. Then I made some caramel-coconut-nut cakes yesterday to take with me to the dinner party. They were very tasty even if they didn’t look as good as they should have. I think I will make the banana bread often, very easy and good to cut up and put slices in the freezer, so I always have something to take with me to school :)

 

 

——————

Ég er líka búin að vera mjög heppin með mína köngulóarfælni að hafa ekki séð margar köngulær, sérstaklega ekki inni :O en fann eina inni á klósetti í síðustu viku, mjög stór að mínu mati. Fékk Andy, annan búðarfélagann til að ‘bjarga’ mér, honum fannst hún nú frekar lítil, og ekki var hún eitruð, svo ekkert að óttast, en mér fannst hún samt vibbi, þarf alvarlega að komast yfir þessa köngulóarfælni mína :S

I have also been very lucky with my Arachnophobia, haven’t been in contact with so many spiders yet, especially not inside :O but I found one in the toilet last week, I thought it was big, so I asked Andy, my housemate to ‘save’ me. He thought it was quite small and not poisoned, so no worries, I still thought it was disgusting… I so have to get over this arachnophobia of mine :S

——————

Náði líka skemmtilegri mynd af ánni um daginn, aldrei séð hana eins busy

I also caught a good photo of the river one day, never seen it this busy before

 

——- Brisbane 7.-28.August 2010

Brisbane ~ önnur vika / second week

Alveg kominn tími á smá update :) Tíminn er ótrúlega fljótur að líða hérna, enda nóg að gera. Frá því síðast er ég td. búin að flytja í herbergið/íbúðina sem ég verð í þar til ég fer héðan og er enn að gera kósý, en ég segi betur frá því síðar.
——-
It is certainly time for an update :) The time has gone by extremely fast here because I have had many things to do. Since last update I have e.g. moved into my room/apartment I will stay in probably until I leave, I am still making it cozy, but I will write more about that later.


Hverfið sem ég var í, þar sem yndislega sófafólkið mitt býr, heitir Paddington, svo í síðustu viku tók ég smá rölt um hverfið, skemmtileg aðalgata með allskonar kaffihúsum, ‘rauðakross’ búðum og á endanum er meira að segja ‘drive-through’ mjólkurbúð, jú áfengi er allt selt í sér áfengisbúðum, reyndar ekki ríkisreknum eins og heima.



The neighborhood that I was in, where my wonderful, best couchsurfers live in, is called Paddington. So last week I took a stroll around the neighborhood, the mainroad is very nice, with all kinds of cafe’s, ‘red-cross’ shops (here called OP-shops) and at the end of the street there is even a drive-through liqour store, yes, alchol is sold here in special shops, similar like back home in Iceland, but here the shops are not run by the government like back home.

Á fimmtudagskvöldið fór ég svo og hitti Mandy, þýsku kærustuna hans Adam, sem var skiptinemi hjá okkur í Frankfurt á síðustu önn. Við fórum á mjög góðan Nepalskan/Himalayan veitingastað í hverfinu en hún kemur í Brisbane nokkra daga í viku að læra, en þau búa á Sunshine Coast sem er hér í um klukkutíma fjarlægð, en YingHan bekkjarfélagi minn úr FH er einnig þar í skipinámi. Svo ég hef í huga að kíkja þangað fljótlega í heimsókn.

Föstudagar eru mjög langir skóladagar, er í tíma frá 9-11 og svo aftur frá 16-20 svo vonandi get ég verið dugleg að nota þennan millitíma til að læra og þegar ég fór út þennan morguninn var þoka yfir allri borginni, mjög skrítið og víst ekkert sérstaklega algengt. Fyrir mig alveg hrikalegt því þá sjást allir köngulóarvefirnir rosalega vel :O því miður tók ég engar myndir af þokunni, reyndi að taka mynd af köngulóarvef með risakönguló í.  En það komu fréttir um þokuna í blöðunum, því flug stöðvaðist meira að segja í smá stund um morguninn.



On Thursday night I went to meet Mandy, she is German and the girlfriend of Adam that was doing an exchange in Frankfurt last semester. We went to a very nice Nepalese/Himalayan restaurant in the neighborhood, but Mandy comes to Brisbane some days a week to stuydy. They live on the Sunshine coast, which is around 1hr. drive away, but there YingHan, my classmate from FH is also studying. So I definately plan to visit them soon.

Fridays are very long school days, but I have class from 9-11 and then again from 16-20, so hopefully I can use the time inbetween for studying. When I went out last Friday morning, there was a fog over the whole city, very strange and I have heard, not so common. For me it was terrible cause then I could see ALL the spider webs very clearly :O Unfortunately I didn’t take any photos, I tried to take a photo of spider web with a huge spider in it. But there were some news about the fog in the papers, aparently even flights got delayed for some time.



Á laugardaginn fór ég svo á markað með sófafólkinu mínu og Simone en hún er þýsk og vermdi ‘sófann minn’ eftir mína dvöl. Þessi markaður er í hinu háskólasvæðinu á mínum skóla og þar er hægt að fá allskonar grænmeti, mat og dót.


Tom æstur í Bratwurst/Tom eager to get a Bratwurst


Simone & Me

On Saturday I went to a marked with my couchsurfers and Simone, she is German and also a couchsurfer at ‘my couch’. This market is on the other campus of my university and there you can get all kinds of vegetable, food and stuff.


Eftir markaðinn hjálpaði Tom mér svo að flytja, síðan náði hann í Simone og við fengum okkur nokkra öl á nýja heimilinu mínu og kíktum á tvo bari í nágrenninu með nýju íbúðarfélögum mínum Andy og Dan ásamt fleira fólki.


Nýju húsfélagarnir Dan & Andy, með Tom á milli sín/ Me new housemates Dan & Andy with Tom between them

Ég varð að prufa þennan Ástralska bjór / Had to try this Australian beer


After the market Tom was so nice to help me to move, he then went and picked up Simone, and we had some bears at home and then checked out two bars in the neighborhood with my new roommates, Andy and Dan along with some other people.


Á sunnudaginn bauð Dan, annar húsfélagi minn, mér með í picnic með fullt af vinum hans í garð í New Farm, öðru hverfi, hinu megin við miðbæinn. Ég tók þá ferjuna í fyrsta skipti, mjög skemmtilegur ferðamáti og einmitt sá fljótlegasti til að fara í skólann. Og já, ég var bitin af maur í garðinum og það var ekki gott, á milli tánna og sveið alveg fram á kvöld - s.s.á meðan ég var að reyna að forðast köngulærnar þá kemur lítill ‘saklaus’ maur og ræðst á mig hehe - ég þarf að komast yfir þessa köngulóarfælni mína sem fyrst hérna down-under!


City Cat ferjan / ferry

Eins og sést er veturinn hér alveg hrikalegur / The winter is really hard here :O


Sunday, Dan, one of my new roommates, was so nice to invite me with him to a picnic with his friends in New Farm, another district on the other side of the CBD. I took the ferry, or the City-Cat as it is called for the first time. A very nice way to travel by public transport and the quickest one to go to my university. And yes, I got bitten by an ant in the park - that is while I was busy trying to stay away from the spiders a small ‘innocent’ ant attacks me, haha - I have to get over this arachnophobia soon here down-under!


Um kvöldið bauð Simone, þýski sófalingurinn mér svo í mat á ‘gamla’ staðinn en hún eldaði svakalega góðan lókal-þýskan rétt sem kallast Mehlspatzen og bar það fram með eplamauki, afar þýskt og gott :)


Tom gaf okkur að smakka heimabruggið sitt og Grahams / Tom let us taste his & Grahams homebrewed beer

Þessi mynd var greinilega tekin áður en ég kenndi þeim að segja “kjöt” / This picture was obviously taken before I thought them to say “kjöt” (icelandic for “meat” and popular during photographs) :Þ


That night, Simone, the German couchserfer, invited me to dinner with the guys at the ‘old’ place. She cooked a very good local-german dish called Mehlspatzen, some kind of small dumplings and served with applemouse, very German and delicious :)


Á mánudaginn fór svo ég í verzlunarmiðstöðina hér í nágrenninu, heitir Toowong Village og er undir 10 mín labb. Þar keypti ég ýmsar nauðsynjar og kósýheit-hluti og svo þegar ég fór í tíma þá skellti ég mér einmitt með ferjunni, afar fínt. Maður getur bæði slakað á inni í ferjunni eða notið útsýnissins úti þegar veðrið er gott.


Húsið mitt, íbúðin er á efstu hæðinni hægra megin / My house and the apartment is on the top floor

Toowong village séð frá göngustígnum fyrir utan hjá mér / Toowong village seen from the walkway in front of my house

Inní verzlunarmiðstöðinni, engir venjulegir rúllustigar / Inside the mall, pretty strange esceladors

Ferjan séð af svölunum / The City Cat seen from my balcony

Útsýnið úr ferjunni á leiðinni í skólann / The view on my way to Uni

Háskólasvæðið mitt / My campus

Á leið til baka með ferjunni, sést glitta í húsið mitt bak við fyrsta húsið og svo Toowong Village hægra megin / On the way back home on the city-cat, my house is behind the first yellow house and on the right is the Toowong Village

On Monday I then went to the mall in my neighborhood, it is called Toowong Village and is under 10 min walk. I bought some necessities and other stuff to make my room cosy, after that I went to class and took the City-Cat (ferry) again, very nice. You can both relax inside or enjoy the view outside when the weather is good.

Í gær fór ég svo í skólann og við fórum á fyrirlestur á SouthBank, en sá hluti Brisbane er akkurat hinu megin við ána frá skólanum og 1988 var EXPO sýning þar. Við fengum kynningu frá forstjóra Southbank fyrirtækisins sem sér um svæðið en í þessum kúrs erum við fjögur í hóp að greina svæðið og skilum svo inn, sem einstaklingsvinna, mismunandi hluta af svæðinu, ég mun td. skoða opnu svæðin. Fyrst eigum við að skila inn greiningu á okkar þætti og svo í lokin einhverskonar hugmyndir frá okkur um svæðið. Í morgun átti ég svo fund með leiðbeinandanum mínum fyrir verkefnakúrsinn, svo ég er komin aðeins nær að finna mér gott verkefni.


Kort af South Bank, skólinn minn og miðbærinn er hinu megin við ána / Map of South Bank, my uni and the CBD is on the other side of the river

South Bank séð frá ferjunni / South Bank seen from the City Cat

Manngerð strönd / Man made beach in the middle of South Bank

Yesterday in class we went to a lecture in South Bank, but that part of Brisbane is on the other side of the river from my university and the CBD and in 1988 it was an EXPO site. We got a presentation from the CEO of Southbank corporation, which controls the area, but in this course we are four in a group to analyze the area and then we hand in as individuals, different aspects of the area, I will e.g. look at the green spaces. First we just have to present our analyzis and then in the end our proposals, since this class is called Urban Design Studio. This morning I then had a meeting with my supervisor for my intergrated project class, so I am a bit closer to finding a good project.


Já ég segi betur frá nýja heimilinu mínu næst, jafnvel set inn myndir af herberginu ef það verður orðið nógu kósý en það er líka afar næs að sitja á svölunum í mjúkum leðursófa og dást að útsýninu.

Yes, I will tell you more about my new home next, maybe I will even put some pictures of my room, if I have finished making it cozy enough, but it is also very cozy to sit on the balcony in a soft sofa and enjoy the view.

Það sem er sérstaklega nýtt fyrir mér ennþá og skrítið, er hvað það dimmir ofboðslega snemma hér, eða rétt upp úr fimm síðdegis, svo ég er að reyna að læra að fara fyrr að sofa og vakna fyrr eins og flest fólk virðist gera hérna. Einnig drekkur fólk hérna mun meira te en kaffi, svo ég drekk í mesta lagi einn kaffibolla á dag hérna, allavega ennþá, en mun meira te og já svo eru líka ýmsar nýjar reglur sem maður tekur eftir og skrítnir mjóir göngustígar sem enda út í runna :)


But what is especially new for me here and still as strange, is how early it gets dark, or just after five pm, so I am still trying to learn how to go earlier to bed and wake up earlier, like most people here seem to do. Also, people here drink way more tee than coffee, so I drink maximum one coffee per day, at least still, but much more tee, which is good and yes, then there are also some new rules and strange narrow walkways that end in a bush :)


Ahh já gleymdi næstum því síðasta húsmeðliminum, þetta er hann Kitler :Þ



Ahhh yes, I almost forgot to mention my last roomie, this is Kitler :Þ

Brisbane fyrstu dagar / first days….

Jæja, þá er ég mætt til Brisbane eftir ansi langt ferðalag og búin að hafa nokkuð nóg að gera og gaman frá því ég kom hingað

——

Well, I have arrived safe and well in Brisbane after quite a jorney and I have had plenty of action and fun since I came here.

Ég var komin hingað eldsnemma á fimmtudagsmorgunninn (22.júlí) eftir 10 tíma flug frá Frankfurt, 7tíma stopp í Seoul og aftur 10 tíma flug hingað. Ég flaug með Korean Air, sem ég mæli pottþétt með. Fyrra flugið var með skjá í sætisbakinu svo ég horfði á bíómyndir, telfdi smá og reyndi svo að sofa sem mest.

I arrived bright and early Thursday morning (22.July) eftir 10 hrs flight from Frankfurt, 7hr stop in Seoul and then again a 10 hr flight to here. I flew with Korean Air, highly recommended. The first flight had these screens in the seatback and personal systems, so I watched some movies, played chess a bit and also tried to sleep as much as I could.

Lenti svo í Seoul um kl.13 á miðvikudeginum og þar sem ég hafði ágætistíma gat ég farið af vellinum. Þeir bjóða upp á allskonar ferðir fyrir farþega sem stoppa í einhvern tíma. Því miður gat ég ekki farið í borgarferð þar sem þær fara allar um hádegið en fór í um klukkutímaferð og skoðaði hof sem er stutt frá flugvellinum. Þar var td. 1300 gamalt tré sem var búið að styrkja með steypu, frekar skrítið en soldið töff.

I then landed in Seoul around 13.00 on Wednesday and since I had quite some time I could leave the airport. They offer some good transit-trips, but unfortunately all the city trips had already departed so I just took a one hour temple trip, which was quite nice. There was e.g. a 1300 years old tree supported with concrete. Vorum bara tvö í þessari ferð með ‘fararstjóranum’, ég og maður frá Víetnam og svo hittum við líka á nokkra hermenn sem voru við æfingar í nágrenninu

We were only two in this trip with our guide, me and a Vietnamese guy, but we also met some Korean soldiers there which was cool.

Flugvöllurinn sjálfur er líka mjög skemmtilegur, á endanum gerði ég ekki einu sinni allt sem ég hafði skoðað að hægt væri að gera þar sem tíminn leið mjög hratt. En ég fór þó í svokallað menningarhorn þar sem maður getur málað svona fallegan blævæng með hefðbundnu kóresku blómamynstri og fékk svo eina til að skrifa nafnið mitt á Kóresku aftan á, afar góður minjagripur

The airport itself is also very good and has a lot of entertainment. In the end I didn’t even do all the things that I had seen online that they had, since the time went by very fast. But I did though go to this kind of cultural center where I painted a ‘fan’ with a typical Korean flower an also I got a girl there to write my name in Korean on the back, a very good souvenir.

Seinni vélin var aðeins minni og bara með stóra skjái fyrir alla, en það var ágætt, ég fékk inniskó og svona dót fyrir augun svo ég svaf mest alla leiðina.

—-

The second aircraft was a little bit smaller and just had these big central screens, but that was good, I got slippers and blinds for the eyes so I slept almost the whole way.

Var svo sótt á flugvöllinn af skólanum, þeir bjóða upp svoleiðis, algjör snilld. Var keyrð hingað til sófa-fólksins míns, en já, ég s.s. ákvað að prufa Couch-surfing í fyrsta skipti, sem þýðir það að fólk býður sófann sinn til ferðalanga. Ég var ekkert smá heppinn með ‘sófa’, en sófinn minn er afar fínt rúm í sér herbergi og fólkið sem býr hérna er frábært. Hér býr eitt par (Tom&Ellen) og tveir aðrir strákar (Graham&Neran) og já, ein Mörtu-kisa (G-Unit) og tvær hænur :) - já sumar göturnar hérna eru líka fáránlega brattar, eins gott að það frystir ekki ;)

I got picked up by my university to the airport, they offer these services which is very good and I was driven to my couch-surfing people, ja, I decided to try Couch-surfing for the first time, but Couch-surfing is an online community where you can find a couch online for travelers. I was very lucky with my ‘couch’, since it is actually not a couch but a nice bed in a seperate room and the people that live here are brilliant. There is a couple here (Tom&Ellen), two other guys (Graham&Neran), one awesome cat and two chickens.

Þau tóku vel á móti mér og hafa gert fyrstu daga mína í Brisbane alveg frábæra. Á fimmtudagskvöldið fóru Tom og Neran með mig á frábæran útsýnisstað akkurat þegar sólin var að setjast og um nóttina passaði kisan að ég yrði nú ekki einmana ;)

The welcomed me very well and have made me first days in Brisbane great. Thursday night, Tom&Neran took me to this great lookout, where you can see over Brisbane, we went when the sun was setting and the first night their great cat saw to it that I wouldn’t be lonely, she reminds me so of my wonderful cat at home in Iceland.

Á föstudaginn fór ég svo í fyrsta tímann minn, smá munur frá tímunum í Frankfurt, en í þessum fyrirlestri voru um 150 manns (erum 12 í bekknum í Frankfurt), en þessi tími er sameiginlegur milli margra deilda, fagið heitir “Sustainable Practice in Built environment and Engineering” eða “Sjálfbær framkvæmt í byggðu umhverfi”. Eftir fyrirlesturinn var síðan skipt upp í minni hópa og rætt lauslega um málefni. Skólinn lítur vel út, hann er milli aðal miðbæjar - viðskipta hverfisins og grasagarðsins í Brisbane

On Friday I went to my first class. A big difference between Frankfurt and here since in this lecture there were aroun 150 people (we are 12 in my Frankfurt class), but this class is thought for many faculties together and is called “Sustainable Practice in Built environment and Engineering”. After the lecture we were then splitted up in smaller groups and discussed the matters from the lecture. The school looks really good, it is between the main central business district and the botanical gardens of Brisbane.

Á laugardaginn fór ég með Tom&Ellen í nokkrar antík búðir hérna í hverfinu, en hverfið sem ég er í heitir Paddington og er ca. 3 strætóstopp frá miðbænum, mjög kósý hverfi. Ég eldaði síðan fyrir fólkið afar góða grænmetissúpu og fylltar kjúklingabringur.

On Saturday Tom&Ellen then took me to some antique shops in the neighbourhood, but they live in Paddington, a very cosy district and like 3 busstops from the center. I then cooked for the guys a very yummy vegetable soup and chicken breasts filled with parmesan and homemade pesto.

Tom&Ellen buðu mér svo með í fyrsta ástralska partýið mitt, þar sem álpappír var þemað :)

Tom&Ellen were then so nice to invite me with them to my first Australian party, it even had a foil theme :)

Á sunnudaginn fóru svo Neran og Tabs, vinkona hans með mig í West End sem er talið frekar hipp og kúl hverfi hérna. Borðuðum Indverskan mat, röltum um hverfið og fengum okkur kaffi. Enduðum svo á að fara í bíó á Inception, nýju DiCaprio myndina. Mæli endilega með að sjá hana, sérstaklega áður en allir fara að tala um hana, en ég hafði ekki einu sinni hugmynd um hvað hún var áður en ég fór á hana. Ekki skemmir að það er frekar ódýrt að fara í bíó hérna í ákveðnum bíóhúsum.

On Sunday Neran&Tabs, his friend then took me to West End, a hip and cool neighbourhood. We had some good indian food, walked around the neighbourhood and got coffee. Then we ended up going to the movies and we saw the new DiCaprio movie, Inception. Highly recommend seeing it, especially before everybody starts talking about it, I had no idea what is was about before I saw it.Even better it is not so expensive to go to the cinema here, in some certain movie theaters.

Í gær (mánudagur) fór ég svo í annan tíma, þetta fag heitir “Integrated project” eða Einstaklings verkefni. Ég er ekki búin að velja mér verkefni ennþá þar sem ég missti af næstum allri fyrstu vikunni og er enn svona að koma mér fyrir. Þessi tími var nú ekki eiginlegur tími þar sem það var aðallega verið að kenna okkur á bókasafnskerfið á netinu í skólanum. Þeir virðast vera mjög duglegir í að setja bækur og greinar á netið og þó maður sé ekki í skólanum getur maður komist inn á gögnin ef maður fer gegnum bókasafnsheimasíðuna, mjög hentugt.

Í dag fór ég svo í fyrsta tímann sem er bara minn master, voru um 20manns og tíminn heitir “Urban Design and Theory Studio” eða Borgarhönnun og fræði - stúdíó, fyrst góður fyrirlestur og síðan svokallað stúdíó þar sem skipt er í minni hópa, ég mun vinna með stað hérna í Brisbane, sem var EXPO staðsetningin, þarf að velja mér aðal áherslu og koma með hugmyndir. Já skólinn byrjar nokkuð snarpt, en það sem er rosa gott hér er að það er ekki eitt stórt verkefni/próf í lok annarinnar, heldur miklu meira dreift yfir önnina. Þetta virðist vera frekar mikið en ég held þegar ég verð búin að koma mér fyrir og aðeins búin að kynnast hvernig skólinn virkar þá muni þetta ganga glimrandi vel.

Já, gleði gleði, fór svo í kvöld og skoðaði íbúð þar sem bróðir Ellen (sem býr hér) og vinur hans búa, en þeir voru akkurat að missa einn húsfélaga svo þeir eru með laust herbergi. Húsið er í hverfi sem heitir Toowong, ekkert rosalega langt frá miðbænum/skólanum, en það er bæði strætóstopp fyrir utan, lest nokkur skref frá og bátastopp og ekki nema þrjú bátastopp í skólann ;) já húsið er við ána, á svölunum er kósý sófi, útsýni yfir ána og miðbæinn (háhýsin), frekar kúl og ekkert of dýrt, svo ég get flutt inn í vikunni.

Jæja, best að skella sér í háttinn… Verð að játa að ég sakna Loga síns frekar mikið mikið, en sem betur fer er nóg að gera. Það skrítnasta við að vera hérna er hvað tímamunurinn er mikill, því ég er 10 tímum á undan Íslandi, svo þegar ég er að fara á fætur er fólk að fara að sofa heima. Líka skrítið að það er allt öfugt, keyra allir vinsta megin og allt það og hvað það dimmir mjög snemma. Núna er líka há’vetur’, svo það er svona um 20°c á daginn, fer niður fyrir 10°c á nóttinni, ég myndi nú kalla þetta íslenskt sumarveður en stærsti munurinn er sá að húsin hér eru ekki svona vel einangruð eins og heima og engir ofnar, svo það getur orðið frekar kalt inni á kvöldin, en það hlýnar nú bara úr þessu :)

——

Yesterday I then went to another class, in a subject called “Integrated Project”. I haven’t picked an assignment yet since I missed the first week here and am still settling in. This class was not kind of an actual class, more a tutorial for the online library, a good thing they seem to put a lot of books and literature online which I can access even if I am not at the university.

Today I then had the first class with only just the people taking the same master as I am. We were around 20 persons and the class is “Urban Design and Theory Studio”. First there was a very good lectuere and then a so called studio where we were divided in smaller groups. I will do a analysis and some solutions for a post expo site here in Brisbane, I haven’t picked my emphasis yet but probably I will focus somewhat on transport and open space. Yes, the school starts pretty quickly but what is really good here is that they don’t have just a 100% assignment/exam in the end of the semester, instead it is more divided throughout the semester. At first this seems to be a lot of study, but I am quite sure as soon as settle in and get the feeling for the studying here I will do good.

And yes, happy happy, I went tonight to look at a room in an apartment the Ellen’s brother and his friend live in. They just lost their roommate and have a free room. The house is in a neighbourhood called Toowong, not so far from the center/school, but it has a busstation in front, a trainstation a few steps a way and also a boat-station with around 3 stops to school :) Yah, so the house is by the river, it has a balcony with a cosy sofa and a view over the river and the center, rather nice and not too expensice, so I will be able to move in sometime in the week.

Well, better head of to bed…. I have to admit that I miss Logi very very much, but fortunately there are not many dull moments here so far. The strangest thing about being here is the extreme time difference, since I am 10 hrs ahead of Iceland, most of the people back home are going to sleep when I wake up. Well then everything is ofcourse up-side down, like they drive on the left side. It also gets dark really early, just after 17.00. It is also the middle of the ‘winter’ here, so it is around 20°c in the day, goes a little below 10°c in the night. I would call it Icelandic summer weather but the biggest difference it that they don’t have well insulated houses or ovens everywhere like back home, so it can get pretty cold inside during the night, but it will only get warmer :)

2 dagar / 2 days…..

Jæja, þá er þessi önn búin og alveg ótrúlegt hvað tíminn hefur liðið hratt hérna í Þýskalandi. Ekki á morgun, heldur hinn, held ég til Brisbane og verð komin þangað eldsnemma á fimmtudagsmorguninn. Já, þetta er ansi langt ferðalag sem ég fyrir vændum, mitt lengsta til þessa, heilir 27tímar + tímamismunur, 10 tíma flug héðan til Seoul þar sem ég á gott 7 tíma stopp og get annað hvort skoðað mig um eða verið slök og fengið mér nudd og svona á flugvellinum og svo annað 10 tíma flug frá Seoul til Brisbane.

Ég byrjaði að pakka fyrir alvöru í gær og hélt áfram í dag og gengur alveg þokkalega… erfiðast er að mega aðeins taka með sér ein 20kg :O Vetrarfötin eru allavega öll komin í kassa, þrátt fyrir að nú sé hávetur í Ástralíu. Þar sem Brisbane er frekar norðarlega er veturinn fremur mildur og ef maður ber saman íslenskar sumartölur og Brisbane vetrartölur þá má ekki greina mikinn mun en meðal vetrarhitinn í Brisbane er svona frá 10-20°c. Veðurspánna næstu daga er hægt að sjá hér. Ég er einmitt nýfarin að venjast hitanum hérna í Frankfurt, búið að vera óvenjuheitt undanfarið, og ég verð að játa að það er stórkostlegur munur að læra fyrir próf í +30°c, jafnvel +40°c suma daga eða þegar maður er á hóteli, með sundlaug, kokteil og herbergi með loftkælingu í sama hita ;)

Síðustu vikur hafa að mestu leiti einkennst af lærdómi, hita og HM, það var hörkustemmning hérna í kringum HM og hefði nú verið ennþá skemmtilegra ef Þýskaland hefði komist í úrslitin, en því miður þá varð Kolkrabbinn Páll sannspár og Þýskarar fóru heim með bronsið.

Prófin kláruðust svo síðasta föstudag, gekk vel, ekki jafn gríðarlega glimrandi og á fyrstu önninni en nokkuð vel samt. Ég fæ nú ekki síðustu einkunnirnar fyrr en eftir rúman mánuð þar sem ég á enn eftir að leggja lokahönd á tvær ritgerðir sem á að skila í ágúst.

Mig langaði að prufa að setja inn nokkrar myndir frá síðustu vikum, sjá hvernig þetta kemur út áður en ég byrja að ‘reporta’ frá Ástralíu, en fyrst enska útgáfan….

_________________

Wel, now this 2nd semester is finished and it is so strange how fast time has gone by here in Germany. Not tomorrow, but the day after, I will head of to Brisbane and I will arrive there bright and early on Thursday morning. Yebb, this is quite a journey and by far, my longest travel up to now, ~27hours in total + time difference, 10hour flight to Seoul where I will have a good 7 hour stop and can either enjoy some excursions or just chill at the airport with a massage, continuing with another 10 hour flight directly to Brisbane.

I started packing for real yesterday, continued today and I must say it is going fairly well… the most difficult part is to only be allowed to travel with 20kg :O My winter clothing are at least all in a box, even if it is now the middle of the winter in Australia. Since Brisbane is ‘quite’ north, the winter is fairly mild and if you compare the current Icelandic summer values to the Brisbane winter ones, there is actually not much difference, but the mean ‘winter’ temperature in Brisbane is ~10-20°c. Here you can see the Reykjavik, Iceland forecast and compare it to the Brisbane one. I am actually just getting used to the heat here in Frankfurt, it as been unusually warm here recently and I have to confess that there is an extreme difference in having to study in +30°c, and some days even +40°c or when you are at a hotel, with a swimming pool, cocktails and a AC room in the same heat :)

Last weeks can mainly be defined by studying, heat and the World Cup. During the WM there was a very good atmosphere here and it would have been even more fun if Germany had gotten to the finals, but unfortunately, Paul the Octopus predicted right and Germany went home with the bronze.

The exams finished last Friday, it went good, not as extraordinary as the first semester but good anyway. I will though not get my last grades until after over a month since I still have to make the final polishing on two essays that are due in August.

I wanted to put in a few photos in here from last weeks, see how it comes out since I am still learning the basics of this site, before I start ‘reporting’ from down under :)

3vikur í brottför / 3 weeks to departure

Jæja, tíminn hefur liðið ótrúlega fljótt hérna í Frankfurt og eftir aðeins tvær og hálfa viku klára ég aðra önnina mína í M.Sc Urban Agglomerations og nokkrum dögum síðar legg ég af stað í nokkuð langt ferðalag, hinum megin á hnöttinn, eða nánar tiltekið til Brisbane, Ástralíu. Þar hyggst ég taka eina skiptinámsönn, sem er skyldu partur af prógraminu. Við gátum valið um nokkra áfangastaði; Svíþjóð, Mexíkó, Chile, Brasilíu og Ástralíu. Ég var á tímabili mjög spennt fyrir bæði Brasilíu og Ástralíu en þar sem mig hefur alltaf langað að kíkja ‘down under’ þá endaði Ástralía á að verða fyrir valinu. Við erum 12 í bekknum mínum, þar af erum við tvær á leiðinni til Ástralíu (ekki á sama stað samt), einn fer til Brasilíu og restin ætlar að skella sér til Malmö í Svíþjóð.

Eins og áður sagði þá er farið að styttast verulega í þetta og datt mér því í hug að opna síðu og skrifa um dvölina í Ástralíu, með myndum og tilheyrandi. Ég hef ekki verið mjög dugleg í Þýskalands dvölinni að setja inn fréttir/myndir, en fyrst maður er á leiðinni aleinn langt-í-burt-istann þá eru kannski einhverjir sem vilja fylgjast með manni og eftirá gæti þetta orðið ágætis minningar-dagbók fyrir sjálfa mig :) Þar að auki eru nú, ótrúlegt en satt, ekki allir sem maður þekkir á fésbókinni (mamma og svona)…

Ég mun reyna að skrifa færslurnar bæði á íslensku og ensku, svo úglensku vinir manns geti nú líka fylgst með:)

————————

Well, time has gone by extremely fast here in Frankfurt and in only two and a half weeks the second semester of M.Sc Urban Agglomerations will be over and a few days later I will take on my journey to the other side of the globe, to Brisbane, Australia, where I will take an exchange semester, mandatory in this masters program. We could choose from a few destinations; Sweden, Mexico, Chile, Brazil and Australia. I was at a time torn between Brazil and Australia, but since I have always wanted to go ‘down under’, Australia became my choice. All together, we are 12 in my class here at Frankfurt, thereof we are two on our way to Australia (not to the same place though), one is heading to Brazil and the rest will do their exchange in Malmö, Sweden.

Well yes, as said before, it is really a short time until I travel to Australia and therefor I thought a blog for my Australia stay would be a good idea. I haven’t been so efficient in my stay here in Frankfurt to post updates or pictures, but since I am traveling alone to the other side of the globe I thought there might be someone wanting to follow what I am up to and afterward this can be a good memory-diary for myself :) Also, believe it or not, not everyone I know is on Facebook (including my mom)….

I will try to ‘report’ both in Icelandic and English :)